Forseti Íslands á stall með Móður Teresu og Mugabe 7. apríl 2008 11:46
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hlýtur hin virtu Nehru-verðlaun, æðstu viðurkenningu sem Indverjar veita. Frá þessu var greint í Nýju-Delí í dag. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að verðlaunin hafi verið stofnuð í minningu Jawaharlal Nehru, leiðtoga í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og fyrsta forsætisráðherra Indlands, en Nehru gegndi því embætti í um tvo áratugi. Það var sérstök dómnefnd sem komst að þessari niðurstöðu og hlýtur Ólafur Ragnar verðlaunin fyrir árið 2007. Indland er eins og kunnugt er fjölmennasta lýðræðisríki veraldar og forseti landsins, frú Pratibha Devisingh Patil, mun síðar afhenda Ólafi Ragnari Grímssyni verðlaunin við hátíðlega athöfn í forsetahöllinni í Nýju-Delí að viðstaddri ríkisstjórn og forystusveit Indlands. Auk viðurkenningarskjals og verðlaunagrips fylgir verðlaununum fjárupphæð sem nemur 5 milljónum indverska rúpía eða ríflega 9 milljónum íslenskra króna. Í hóp merkra manna Fram kemur í tilkynningu frá embættinu að meðal þeirra sem hlotið hafa verðlaunin séu Martin Luther King, forystumaður í réttindabaráttu blökkumanna, Nelson Mandela, leiðtogi Suður-Afríku, Móðir Teresa, leiðtogi í mannúðar- og líknarstarfi, og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands ásamt Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar. Við þennan lista má bæta að bæði Robert Mugabe, forseti Simbabve, og Tito, leiðtoga Júgóslavíu. Mugabe fékk verðlaunin árið 1989 og Tito árið 1971. Þá fékk Jassir Arafat, leiðtogi Palestínumanna, verðlaunin árið 1988. Enn fremur fékk keníska baráttukonan og friðarverðlaunahafinn Wangari Maathai Nehru-verðlaunin árið 2005. Verðlaunin eru veitt einstaklingum fyrir mikilsvert framlag til alþjóðlegrar samvinnu og vináttu milli þjóða. Í yfirlýsingunni sem birt var í Nýju-Delí í morgun er vísað til hinnar nánu samvinnu Ólafs Ragnars Grímssonar við Indverja og indversk stjórnvöld allt frá því að hann heimsótti landið fyrst árið 1983. Á þessu ári hefði því vinátta hans við Indland staðið óslitið í aldarfjórðung. Í yfirlýsingunni er auk þess vikið að forystustörfum Ólafs Ragnars Grímssonar á alþjóðavettvangi og þætti hans við að skapa Friðarfrumkvæði sex þjóðarleiðtoga á árunum 1984-89. Indira Gandhi, dóttir Jawaharlal Nehru, og sonur hennar, Rajiv Gandhi, voru þátttakendur í því frumkvæði, en þau gegndu bæði embætti forsætisráðherra á Indlandi. Lista yfir Nehru-verðlaunahafa má finna hér.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira