Innlent

Landeigendur vonsviknir

Stjórn Landsamtaka landeigenda furðar sig á nýjustu þjóðlendukröfu ríkissins og telur hana ekki í samræmi við fyrri yfirlýsingar fjármálaráðherra í þjóðlendumálum. Formaður samtakanna lýsir yfir vonbrigðum með að fjármálaráðherra.

Kröfurnar sem vísað er til ná frá Fnjóská að Blöndu og voru birtar í lok mars. Segir í yfirlýsingu frá samtökunum að með kröfunum ætli ríkisvaldið enn einu sinni að vaða freklega inn á þinglýstar landareignir sveitarfélaga og einstaklinga og hirða þær af lögmætum eigendum sínum.

Fjármálaráðherra hafi boðað breytt viðhorf og vinnubrögð ríkissins á aðalfundu landeigenda í febrúar og kröfurnar nú séu í engu samræmi við það. Vinnubrögðin í aðdragandanum nú bendi hins vegar eindregið til þess að boðskapur ráðherrans hafi annað hvort ekki skilað sér til málflytjenda ríkisvaldsins eða fái þar engan hljómgrunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×