Falsaðir Ferrari seljast sem ósviknir væru 4. apríl 2008 16:11 Hann er rennilegur þessi en tengist þó ekki fréttinni beint.
Falsaðar Ferrari-bifreiðir sem lögreglan á Ítalíu lagði hald á fyrr á árinu þegar lagt var til atlögu við hóp bifreiðafalsara þykja svo vel úr garði gerðar að áhugamenn um Ferrari hafa keypt 14 af 21 bifreið sem hald var lagt á. Falsaðan Ferrari 328 GTB má fá fyrir litlar 2,2 milljónir króna sem er um fjórðungur af því sem ófalsað eintak af bifreiðinni kostar á Ítalíu. „Það er engin leið að sjá að um fölsun er að ræða fyrr en bíllinn er grandskoðaður," sagði Cesare Constantini, Ferrari-áhugamaður sem hefur marga fjöruna sopið. Stórstígar tækniframfarir hafa komið því til leiðar að góðir verkmenn geta falsað flóknustu hluti svo vel að sérfræðinga þarf til að þekkja mun á falsaðri og ófalsaðri vöru og eru bifreiðar þar engin undantekning. Ferrari-bifreiðirnar eru þó ekki fullkomlega falsaðar nema að utan, þeir sem til þekkja segja að innréttingin komi þegar upp um fölsunina og síðast en ekki síst eru vélar bifreiðanna langt frá því að vera ósviknar. Kaupendur setja slíkt þó ekki endilega fyrir sig enda hermir tollatölfræði innan Evrópusambandsins að umferð hvers kyns falsaðs varnings hafi aukist um 1.000% milli 1998 og 2004 og nú mun það ekki lengur vera eingöngu fólk sem hefur ekki efni á ósviknum vörum sem kaupir falsvarninginn, þeir efnuðu kaupa hann líka. Þau tuttugu ára gömlu rök lögmætra framleiðenda, að kaupendur falsvarnings hefðu hvort eð er ekki efni á ósviknu vörunum og framleiðendur yrðu þar af leiðandi ekki fyrir neinu tjóni, hafa því elst illa. CNN greindi frá.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira