Dómurinn hefði verið slæm tíðindi fyrir tjáningafrelsið sev skrifar 4. apríl 2008 14:29 „
Ég er mjög ánægð með niðurstöðu dómsins enda hefði verið erfitt fyrir blaðamenn að vinna vinnu sína ef við hefðum verið fundnar sekar í þessu máli og það hefði verið slæm tíðindi fyrir tjáningarfrelsi í landinu," segir Elín Arnar, ritstjóri Vikunnar. Hún og Björk Eiðsdóttir blaðamaður Vikunnar voru í dag sýknaðar af meiðyrðamáli sem Ásgeir Davíðsson eigandi Goldfinger höfðaði gegn þeim, fyrir umfjöllun blaðsins um nektardansstaði. Upprunarlega stefndi Ásgeir þeim Björk og Elínu auk viðmælanda þeirra, Lovísu Sigmundsdóttur, fyrrverandi nektardansmeyjar, vegna meintra ærumeiðandi ummæla. Hann krafðist fimm milljóna í skaðabætur auk greiðslu málskostnaðar og 800 þúsund króna til að kosta birtingu dóms í málinu í þremur dagblöðum. Hann féll þó síðar frá kröfugerð á hendur Lovísu, á þeim forsendum að rangt hefði verið haft eftir henni. Dómurinn leit hinsvegar svo á að Lovísa bæri ábyrgð á ummælum sínum í viðtalinu. Þar sem fallið hefði verið frá kröfugerðinni bæri blaðamaðurinn því ekki ábyrgð sem „höfundur greinarinnar", og féllst dómurinn því ekki á að tiltekin ummæli væru dæmd dauð og ómerk. Þá taldi dómurinn blaðamann hafa sett millifyrirsagnir fram á eðlilegan hátt, og án þess að fara út fyrir mörk tjáningarfrelsis. Elín Arnar ritstjóri þótti sömuleiðis ekki hafa farið út fyrir mörk tjáningafrelsis með framsetningu efnis á forsíðu og í efnisyfirliti. Dóminum þótti því ekki vera skilyrði fyrir miskabótakröfu í málinu. Þarf Ásgeir því að greiða þeim 600 þúsund krónur í málskostnað. Ásgeir var að vonum ekki ánægður með dóminn, og hugleiðir að áfrýja honum. Hann segist ekki getað séð niðurstöðuna sem sigur fyrir tjáningarfrelsi, ef hann þýðir það að hver sem er sagt það sem honum sýnist um annað fólk. „Í rekstri eins og ég er í kemur ótrúlegasta fólk til mín, heimtar að fá endurgreiddan pening sem þeir hafa eytt og er með allskonar kröfur og dónaskap. Ég lendi í því að minnsta kosti einu sinni í viku að fólk segist þekkja blaðamann og ætli með málið í blöðin," segir Ásgeir. „Ég hef samt ekki lent í því áður að einhver rugludallur geti labbað inn og sagt hvað sem er um mig," segir Ásgeir og bætir við að yfirleitt hafi blaðamenn reynt að sýna báðar hliðar málsins.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Sjá meira