Tvöfalt meiri samdráttur í bílasölu en áður var gert ráð fyrir 4. apríl 2008 12:45
Allt stefnir í að samdráttur í sölu nýrra bíla á þessu ári verði tvöfalt meiri en áður vart gert ráð fyrir. Formaður Bílgreinasambandsins segir að bílaumboðin séu nú þegar byrjuð að draga úr pöntunum og minnka birgðir. Sala á bílum tók verulegan kipp upp á við í byrjun þessa árs og jókst bílasala um allt að fimmtíu prósent í janúarmánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Í síðasta mánuði snerist dæmið hins vegar við og dróst sala þá saman um 25 prósent. Bílasalar gera nú ráð fyrir samdrætti á næstu mánuðum og því til marks var yfirskrift aðalfundar Bílgreinasambandsins, sem haldinn var í gær, Þjónusta sem uppspretta sóknar í kreppu. Aðspurður hvort kreppa væri fram undan sagði Egill Jóhannsson, formaður Bílgreinasambandsins, að menn yrðu að spyrja sig að því. Sambandið vilji ekki taka svo djúpt í árinni en það verði augljóslega samdráttur. Áður en árið hófst hafi verið reiknað með tíu prósenta samdrætti á árinu en mönnum sýnist núna sem hann verði 20 prósent. Egill segir að bílasalar séu þegar byrjaðir að bregðast við samdrættinum. „Það er augljóst að við þurfum, bílaumboðin í landinu, þurfa að draga úr pöntunum og mörg þeirra hafa nú þegar byrjað fyrir kannski sex til átta mánuðum, síðan að draga úr pöntunum og minnka birgðir," segir Egill. Hann telur að það dragi úr sölunni fram á vor en á seinni hluta sumars og í haust muni salan jafna sig og koma inn á markaðinn aftur.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira