Gagnrýna þröng skilyrði í auglýsingu um stöðu vegamálastjóra 4. apríl 2008 11:09 Þrýst er á Kristján L. Möller að auglýsa stöðu vegamálastjóra að nýju. MYND/Pjetur
Starfsmannafélag Miðstöðvar og Suðvestursvæðis hjá Vegagerðinni krefst þess að staða vegamálastjóra verði auglýst á ný og að menntunarkröfur í starfið verði ekki skilgreindar jafnþröngar og í nýbirtri auglýsingu. Samkvæmt auglýsingunni var verkfræðimenntun sett sem skilyrði ólíkt því sem gert var þegar embættið var auglýst fyrir sex árum. Þá var aðeins krafist háskólamenntunar og stjórnunarreynslu. Starfsmannafélagið segir í tilkynningu sinni að hjá Vegagerðinni séu starfsmenn með fjölbreytta háskólamenntun og reynslu. Með auglýsingunni, sem birtist í síðasta mánuði, sé verið að takmarka mjög þann hóp sem geti sótt um þessa stöðu, bæði innan Vegagerðarinnar og utan hennar. Gagnrýna að skipulagsbreytingar séu boðaðar í auglýsingu Þá gagnrýnir starfsmannafélagið að starfsmenn Vegagerðarinnar þurfi fyrst að frétta af væntanlegum skipulagsbreytingum í áðurnefndri auglýsingu. „Það hlýtur að teljast eðlilegri stjórnsýsla að ráðuneytið hefði tilkynnt starfsmönnum fyrr um að breytingar stæðu fyrir dyrum í stað þess að fréttir um þær komi fram með svo óljósum hætti í auglýsingunni. Síðar, þann 28. mars sl., barst tilkynning frá ráðuneytinu til starfsmanna Vegagerðarinnar, þar sem kemur fram að ríkisendurskoðandi muni gera tillögur um breytingar á skipulagi verkefna hjá Vegagerðinni og Siglingastofnun. Ráðuneytið muni síðan fara yfir þessar tillögur og taka ákvarðanir um breytingar í framhaldi af því. Sú vinna verði unnin í fullu samráði við starfsfólk Vegagerðarinnar. Stjórn starfsmannafélagsins óskar eftir því að ráðuneytið upplýsi með hvaða hætti það samráð muni fara fram og hvað hugmyndir ráðuneytið hafi um breytingar á skipulagi Vegagerðarinnar," segir í tilkynningu starfsmannafélagsins.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira