Staðfestir ákvörðun Skipulagsstofnunar um álver í Helguvík 3. apríl 2008 16:30
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar vegna álvers Norðuráls í Helguvík og þannig hafnað í bili þeirri kröfu Landverndar að álverið og tengdar framkvæmdir fari í heildstætt mat. Þetta kom fram blaðamannafundi sem ráðherra efndi til í dag. Samkvæmt lögum hefur Skipulagsstofnun heimild til þess að gera heildarmat á umhverfisáhrifum álvers í Helguvík en nýtti það ekki. Komst stofnunin að því að fyrirhugað álver í Helguvík myndi ekki valda verulega neikvæðum og óafturkræfum áhrifum á umhverfi eða samfélag, "með fyrirvara um umhverfisáhrif tengdra framkvæmda," eins og það var orðað í umsögn hennar. Landvernd taldi eðlilegt að framkvæmdirnar í heild yrðu metnar, þar á meðal hafnarframkvæmdir, svokölluð flæðigryfja, háspennulínur og fyrirhugaðar virkjanir. Vildi Landvernd að álit Skipulagsstofnunar yrði ógilt í kæru sinni til umhverfisráðherra. Umhverfisráðuneytið tók málið til skoðunar og segir í niðurstöðu þess að til þess að sameiginilegt mat á umhverfisáhrifum geti komið til álita verði tengdar framkvæmdir að vera matsskyldar samkvæmt lögum en í sérhverju mati einstakra framkvæmda skal gera grein fyrir sammögnunaráhrifum þeirra með öðrum framkvæmdum. Með vísan til þessa og annarra þátta málsins verði eins og á stendur að telja að ákvörðun um sameiginlegt mat álversins og tengdra framkvæmda færi í bága við meðalhófsreglu og sjónarmið um réttmar væntingar framkvæmdaaðila. Því var ákvörðun Skipulagsstofnunar staðfest. Umhverfisráðuneytið áréttar þó að niðurstaðan feli ekki í sér afstöðu ráðuneytisins til þess hvort heildstætt mat kunni síðar að geta komið til álita vegna annarra matsskyldra framkvæmda sem tengjast álverinu í Helguvík. Ákvörðun samkvæmt lögum en ráðherra ekki að skapi Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði á blaðamannafundinum að ákvörðunin væri samkvæmt lögum en hún væri henni ekki að skapi. Breyta þyrfti lögum um mat á umhverfisáhrifum á þann veg að sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum tengdra framkvæmda væri skylda en ekki heimild. Sagði hún umhverfið ekki njóta sömu verndar og mannréttindi í stjórnarskrá og taldi hún að við því þyrfti að bregðast.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira