Átakshópur um málefni miðborgarinnar 3. apríl 2008 15:34 Ólafur F Magnússon borgarstjóri Reykjavíkur
Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarna daga varðandi umgengni og umhirðu miðborgarinnar, sem sýnir að almenningur lætur sér annt um hjarta Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem má sjá hér að neðan. Aðgerða er þörf og hafa borgarstjóri og embættismenn borgarinnar sett saman aðgerðaráætlun til eflingar miðborgarinnar. Stofnaður verður átakshópur skipaður helstu embættismönnum borgarinnar sem koma að þessum málum, auk slökkviðliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins. Ennfremur verður lögreglan kölluð til og fulltrúar hagsmunaaðila á borð við íbúasamtök og verslunareigendur. Ráðgert er að hópurinn hittist ört og viðhafi skjót vinnubrögð til að bæta umhirðu í miðborginni, fjarlægja rusl og mála yfir veggjakrot. Ráðinn verður sérstakur verkefnisstjóri miðborgarmála á skrifstofu borgarstjóra. Með því móti verði tryggt að sífellt sé unnið að málefnum miðborgarinnar í náinni samvinnu við borgarstjóra og ætíð tekið mið af hagsmunum hennar við stefnumótun. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins hefur þegar hafið skráningu á öllum húsum í miðborginni sem eru mannlaus og hætta getur stafað af, í því skyni að bæta yfirsýn yfir umfang verkefnisins. Viðtæk samvinna verður milli starfsmanna Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, byggingafulltrúa og Framkvæmda- og eignasviðs við að leysa úr ýmiss konar vanda vegna mannlausra húsa í borginni. Mun það byggja á tillögum sem samþykktar voru í borgarráði í morgun. Formaður skipulagsráðs hefur tekið málið markvisst á dagskrá ráðsins. Sú góða vinna sem þar fer fram mun skila sér inn í vinnu átakshópsins. Þá mun skipulagsstjóri útfæra tillögu um sérstakt kjarnasvæði í miðborg Reykjavíkur þar sem gilda skuli ákveðnar og skýrar grunnreglur í skipulagi, umfram önnur svæði. Framkvæmda- og eignasvið er jafnframt að endurskoða allar reglur um þrif og umsýslu borgarlandsins og mun gera tillögur um það til umhverfisráðs. Í gær hófust starfsmenn á Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar handa við að bæta ásýnd Laugavegarins, og munu 20 til 30 manns taka þátt í því verki næstu daga. Borgarbúar eru hvattir til að taka þátt í fegrun miðborgarinnar með borgaryfirvöldum til að gera góða borg enn betri og sýna miðborginni þann sóma sem hún á skilið. Vakin er athygli á ábendingarvefnum 1,2 og Reykjavík á heimasíðu Reykjavíkurborgar fyrir borgarbúa sem vilja koma ábendingum til Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Sjá meira