Brunavörnum í MR verulega ábótavant 3. apríl 2008 12:46
Gríðarlega mikil menningarverðmæti gætu glatast ef eldur kæmi upp í húsi Menntaskólans í Reykjavík. Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar segir brunavörnum í húsinu verulega ábótavant og að fara verði strax í aðgerðir til að bæta þar úr. Hús Menntaskólans í Reykavík státar af langri og merkilegri sögu. Húsið var reist um miðja nítjándu öld og þar var meðal annars þjóðfundurinn haldinn árið 1851. Stórbruninn í Lækjargötu á síðasta ári þar sem tvö gömul hús brunnu nánast til kaldra kola hefur vakið upp spurningar um brunavarnir í gömlum húsum. Á fundi slökkviliðsstjóra á Grand Hótel í gær kom meðal annars fram að mörg gömul hús í miðbæ Reykjavíkur eru með úreltar eða alls engar brunavarnir. Magnús Sædal, byggingarfulltrúi í Reykjavík, segir að fjöldi merkilegra timburhúsa sé í borginni og þar gnæfi upp úr Menntaskólinn sem sé eiðsvöllur borgarinnar „og þar verður að fara í það að setja vatnsúðunarkerfi. Það er ekki spurning um að gera það. Þar eiga menn ekki að bíða eftir því að fara í endurbyggingu, menn eiga að gera þessar ráðstafanir strax," segir Magnús. Aðspurður hvort húsið sé í hættu ef það kæmi upp eldur nú segir Magnús að það gæti orðið svakalegt „því þetta hús er allt saman fullt af holrýmum og menn gætu lent í gríðarlegum vanda að slökkva í því húsi," segir Magnús. Undir þetta tekur Björn Karlsson brunamálastjóri en hann vinnur nú í samvinnu við borgaryfirvöld að heildarúttekt á brunavörnum í gömlum byggingum. „Ég held t.d. að hús eins og Menntaskólinn í Reykjavík sem er ómetanlegt hús hvað varðar menningarverðmæti það verður að fara að skoða svona hús," segi Björn og nefnir einnig Iðnó og önnur hús sem þjóðin vilji ekki missa.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira