Innlent

Segist hafa sent utanríkismálanefnd minnisblað um NATO-fund

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að ferð hennar og forsætisráðherra með forstjóraflugvél á leiðtogafund NATO í Búkarest hafi ekki kostað nema eitt til þrjú hundruð þúsund krónum meira en ef þau og fylgdarlið hefðu farið í farþegaflugi.

Stjórnarandstaðan deilir hart á flug forsætis- og utanríkisráðherra með Dornier forstjóraflugvél á NATO fundinn í Búkarest. Forsætisráðherra blæs á gagnrýnina.

Embættismenn segja að ein af ástæðum þess að fara varð með leiguflugvél hafi verið fundur með bankastjórum Seðlabankans á þriðjudag um aðgerðir í peningamálum. Þá hafi vélin reynst óvenjulega ódýr, en leigusalanum hafi verið lofað að gefa ekki upp verðið opinberlega.

Ingibjörg Sólrún svarar gagnrýni á að utanríkismálanefnd hafi ekki verið kölluð saman á þá leið að ítarlegt minnisblað hafi verið sent til nefndarinnar með bakgrunnsupplýsingum um NATO-fundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×