Eldveggur ekki milli húsa sem brunnu í miðbænum 2. apríl 2008 12:07
Eldveggur sem átti að vera á milli Austurstrætis 22 og Lækjargötu 2 var ekki til staðar þegar húsin brunnu til kaldra kola í apríl í fyrra. Þetta kemur fram í skýrslu Brunamálastofnunar sem birt er nú í hádeginu. Svo virðist sem veggurinn, þvert á allar brunavarnarkröfu, hafi verið rifinn niður og annar veikbyggðari settur í staðinn. Mikið eignatjón varð í eldsvoðanum síðastliðið vor. Húsin við Austurstræti 22 og Lækjargötu 2 brunnu til kaldra kola en bæði voru þau byggð á fyrri hluta 19. aldar. Brunamálastofnun hefur látið gera skýrslu um eldsvoðann og verður hún kynnt á fundi slökkviliðsstjóra á Grand Hótel í Reykjavík nú í hádeginu. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um eldvarnir og eldvarnareftirlit í húsunum og mat lagt á slökkvistarf. Þar kemur meðal annars fram eldveggur sem átti að vera á milli húsanna reyndist við nánari skoðun ekki vera til staðar. Svo virðist sem hann hafi verið rifinn niður fyrir rúmum 30 árum og annar veikbyggðari veggur sem ekki stenst brunavarnakröfur settur í staðinn. Að mati skýrsluhöfunda varð þetta til þess að útbreiðsla eldsins varð jafn gríðarlega mikil og hröð eins og raun bar vitni. Slökkviliðið fær þó góða einkunn í þrátt fyrir að slökkvistarf hafi verið flókið, eins og segir í skýrslunni, þar sem eldurinn hafi aðallega verið innan þilja og farið hratt yfir. Slökkvilið hafi komið fljótt á staðinn og vel hafi gengið að koma auknum mannafla og tækjabúnaði á staðinn.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira