Lífið

Glitter loksins lentur í London

Rokkstjarnan fyrrverandi Gary Glitter hefur nú loksins sæst á að halda til heimalands síns Englands. Breskir miðlar segja að Glitter, sem nýlega var sleppt úr haldi í Víetnam þar sem hann var dæmdur fyrir barnaníð, hafi í morgun lent á flugvelli í London.

Síðustu þrjá daga hefur hann verið fastur í einskonar limbói á flugvöllum víðsvegar um Asíu en yfirvöld í Tælandi og Hong Kong vildu ekki veita honum landvistarleyfi. Glitter sjálfur þvertók hins vegar fyrir að snúa aftur til Englands en virðist nú hafa sæst á það.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.