Samgönguráðherra brýtur lög 28. mars 2008 16:00 Kristján Lúðvík Möller samgönguráðherra.
Samgönguráðherra var óheimilt að þrengja hin almennu hæfisskilyrði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þegar hann auglýsti embætti vegamálastjóra og gerði þær kröfur að umsækjendur hefðu háskólapróf í verkfræði eða sambærilega menntun. Þetta segir Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður í samtali við Vísi. „Álitaefnið er hvort stjórnvald megi þrengja hæfisskilyrðin frá því sem lögin segja. Mín skoðun er að það megi ekki nema fyrir því séu sérstakar og knýjandi ástæður hverju sinni sem ég get ekki séð að séu fyrir hendi í þessu tilviki," sagði Gestur og vísaði til tveggja álita umboðsmanns Alþingis máli sínu til stuðnings. Í öðru þeirra segir að sá sem ráði í störf hjá ríkinu geti að jafnaði ekki í auglýsingu sett strangari skilyrði um almennt hæfi að því er varðar menntun, en þau sem fram koma í lögum, nema slíkt teldist málefnalegt og sýnt væri fram á ótvíræða nauðsyn þess að gera slíka kröfu. „Auðvitað hefur stjórnvöldum verið heimilt að segja í auglýsingu að þau muni horfa sérstaklega til ákveðinna eiginleika umsækjenda en þau geta ekki breytt almennu hæfisskilyrðunum, ég tel það alveg óheimilt," sagði Gestur. Lárentsínus Kristjánsson, formaður Lögmannafélags Íslands, sagði það undarlegt að ráðherra setti slíkt í auglýsingu um opinbert embætti og að stjórn félagsins hygðist taka málið til umræðu þegar á næsta fundi sínum. „Mér finnst þetta mjög óeðlilegt, þetta er ekki lögbundið hæfisskilyrði og ég tel að ráðherra þurfi að rökstyðja þetta sérstaklega," sagði hann. Ekki náðist í Kristján L. Möller samgönguráðherra vegna málsins.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira