Harðar deilur um stúku á borgarráðsfundi í gær 28. mars 2008 13:45
Upp úr sauð á borgarráðsfundi í gær þegar greinargerð formanns KSÍ um framkvæmdir við Laugardalsvöll var lögð fram. Skiptar skoðair voru um það hver ber ábyrgðina á því að kostnaðun við framkvæmdirnar fóru fram úr áætlun. Allt útlit er fyrir að kostnaðaraukning Reykjavíkurborgar vegna framkvæmda við Laugardalsvöll verði tæpar 200 milljónir króna. Formaður KSÍ heldur því fram í greinargerð sinni að Degi B. Eggertssyni, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og fyrrverandi nefndarmanni í bygginganefnd, hefði átt að vera fullljóst að framkvæmdirnar færu fram úr áætlun strax í apríl 2006. Á borgarráðsfundinum í gær hafnaði Dagur því alfarið og sagði greinargerðina stangast í mikilvægum atriðum á við fyrirliggjandi gögn málsins, fundargerðir bygginganefndar og fyrri yfirlýsingar formanns KSÍ. Upp úr sauð þegar sjálfstæðismenn létu þá færa til bókar að Dagur hefði sem nefndarmaður í byggingarnefnd átt að mótmæla ákvörðunum KSÍ sem leiddu til þess að samningar við verktaka voru hærri en áætlað var og að hann hefði átt að óska eftir frekari fundum í nefndinni. Ábyrgðin væri því í raun hans og R-listans sem þá fór með völd í borginni. Þetta þótti minnihlutanum í Reykjavík með ólíkindum og sagði það vekja upp spurningar um hvaða hagsmuni meirihlutinn hefði að leiðarljósi í þessu máli. Borgarráð komst ekki að niðurstöðu á fundinum um hvernig greiðslum til KSÍ skyldi háttað vegna framkvæmdanna. Nokkrar tillögur þar að lútandi voru lagðar fyrir fundinn en þær voru ekki teknar til efnislegrar meðferðar.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira