Skýra stöðuna fyrir tollvörðum á næstunni 28. mars 2008 11:55 MYND/GVA
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir að ráðuneytið muni á næstunni reyna að skýra stöðuna fyrir tollvörðum sem eru afar óánægðir með þær hugmyndir að skilja eigi að tollgæslu og lögreglu á Suðurnesjum. Samkvæmt ákvörðun stjórnvalda munu lögreglumál heyra undir dómsmálaráðuneytið og tollgæslan undir fjármálaráðuneyti eftir breytingarnar. Þær eru tilkomnar vegna ágreinings um fjármuni til embættisins. Tollverðir funduðu í gær og sendu í kjölfari frá sér ályktun þar sem ákvörðun stjórnvalda er mótmælt. Engar efnislegar eða fjárhagslegar ástæður séu fyrir ákvörðuninni og þá óttist tollverðir að hún geti haft áhrif á góðan starfsanda og árangur hjá embætti lögreglu- og tollstjóra á Suðurnesjum. Eins og fram hefur komið hefur Jóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjóri, beðist lausnar og samkvæmt heimildum Vísis er það vegna óánægju með breytingarnar. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði ráðuneytið myndu reyna að skýr málið fyrir tollvörðum og reynt yrði að halda út eins sterkri starfsemi og mögulegt væri í Leifsstöð. Spurður um brotthvarf Jóhanns sagði Árni að ákvörðunin væri Jóhanns en hann sæi á eftir honum. Auðvitað væri verið að breyta þeirri stöðu sem hann gengdi og embættinu. Nefnd ekki falið að gera tillögur um lækkun á eldsneytisálögum Árni var einnig spurður út í það eftir ríkisstjórnarfund í morgun hvort álögur á eldsneyti yrðu lækkaðar og hvort von væri á að tillögur nefndar fjármálaráðuneytsins um eldsneyti yrðu gerðar opinberar. Árni benti á að nefndinni hefði verið falið að koma með tillögur að samhæfingu á gjaldtöku fyrir eldsneyti og bifreiðar á sem bestan og umhverfisvænastan hátt en ekki að gera tillögur um lækkanir á álögum. Árni var enn fremur spurður um það hvaða skilaboð hann hefði til almennings í ljós efnahagsástandsins. Árni sagði að aðalfundur Seðlabankans yrði í dag og forsætisráðherra myndi flytja ræðu þar. Hann teldi ekki rétt að tjá sig um stöðu mála fyrr að henni lokinni.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Sjá meira