Sr. Bolli Þórir Gústavsson látinn 27. mars 2008 15:32 Sr. Bolli Þórir Gústavsson. MYND/BISKUPSSTOFA
Eftirfarandi fréttatilkynning hefur borist Vísi: Séra Bolli Þórir Gústavsson vígslubiskup er látinn 72 ára að aldri. Hann fæddist á Akureyri 17. nóvember árið 1935, sonur hjónanna Gústavs Elí Berg Jónassonar rafvirkjameistara og Hlínar Jónsdóttur húsfreyju. Sr. Bolli lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1963 og vígðist sama ár sóknarprestur til Hríseyjarprestakalls. Hann var skipaður sóknarprestur í Laufásprestakalli árið 1966, þar sem hann gegndi embætti uns hann varð vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal árið 1991, en lét síðan af því embætti árið 2002 sökum heilsubrests. Sr. Bolli gegndi margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum innan kirkju sem utan. Þar má af mörgu nefna formennsku hans í æskulýðssambandi kirkjunnar í Hólastifti, síðar í Prestafélagi þess sama stiftis og þá sinnti hann formennsku í Hólanefnd eftir að hann tók við embætti vígslubiskups á Hólum. Um árabil var sr. Bolli formaður úthlutunarnefndar listamannalauna og lét í því samhengi víða til sín taka í lista- og menningarlífi þjóðarinnar. Hann var kunnur fyrir ritstörf bæði fyrir blöð og tímarit og skrifaði lengi reglulega pistla og greinar í Morgunblaðið ásamt leiklistargagnrýni fyrir sama blað um sýningar Leikfélags Akureyrar. Um tveggja ára skeið ritstýrði hann tímaritinu Heima er best og tók saman ófáar dagskrár um skáld og skáldskap til útvarpsflutnings. Sr. Bolli skrifaði 6 bækur um menn og málefni. Flestar þeirra myndskreytti hann sjálfur og fyrir bókina Vorganga í vindhæringi fékk hann viðurkenningu Almenna bókafélagsins á 25 ára afmæli þess. Hann hlaut styrk úr Gjöf Jóns Sigurðssonar fyrir söfnun og útgáfu á ljóðmælum séra Björns Halldórssonar í Laufási og ritgerð um skáldið. Á afmælisdegi sr. Bolla 17. nóvember síðastliðinn kom út bókin Lífið sækir fram, sem er safn prédikana og ljóða eftir hann og gefin út að frumkvæði fjölskyldu hans. Eftir að sr. Bolli tók við embætti vígslubiskups á Hólum beitti hann sér fyrir byggingu Auðunarstofu, en það er endurgerð stokkahúss, sem Auðun biskup rauði reisti á 14. öld og var rifið illu heilli í byrjun 19. aldar. Hús þetta prýðir nú Hólastað, það vitnar um forna sögu og nýtist um leið sem fræða- og fundaraðstaða starfi kirkju og kristni til blessunar. Eftirlifandi eiginkona sr. Bolla er Matthildur Jónsdóttir. Börn þeirra eru, Hlín, Jóna Hrönn, Gústav Geir, Gerður, Bolli Pétur og Hildur Eir.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar Innlent Fleiri fréttir „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu