Enn beðið eftir tillögum ríkisstjórnarinnar 16. febrúar 2008 18:51 Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Undirritun kjarasamninga er ekki í augsýn fyrr en í fyrsta lagi seinni partinn á morgun, segir forseti Alþýðusambands Íslands - og þá aðeins ef ríkisstjórnin kemur fram með viðunandi tillögur. Tillögur ríkisstjórnarinnar voru ekki kynntar nú síðdegis eins og vonast hafði verið eftir. Lokaspretturinn í kjaraviðræðunum hefur verið aðeins lengri en bjartsýnustu menn þorðu að vona - og málið dregist beggja vegna borðsins. Í Karphúsinu hafa fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins setið stíft við fundahöld frá því klukkan tíu í morgun. Einkum hefur verið rætt um sérkröfur landssambandanna innan ASÍ. Grétar Þorsteinsson var um hádegið bjartsýnn á að mönnum tækist að ljúka öllu í dag en þegar fréttastofa hafði samband við hann nú á sjötta tímanum, sagði hann enn nokkur mál óleyst en átti ekki von á öðru en að hægt yrði að klára öll mál við atvinnurekendur seint í kvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu er verið að reka smiðshöggið á tillögur ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana, en ekki tókst að klára þær í dag og kynna eins og útlit var fyrir. Hins vegar er ekki útilokað að aðilar vinnumarkaðarins verði boðaðir til fundar seint í kvöld. En þótt verkalýðshreyfingunni og atvinnurekendum hugnist það sem ríkisstjórnin hefur fram að bjóða eru allar líkur á að menn hvíli sig í nótt og ljúki pappírsvinnunni á morgun. Því er ekkert sem bendir til að kjarasamningar verði í höfn þegar landsmenn skríða fram úr í fyrramálið, en gæti orðið seinnipartinn á morgun.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira