Þrír landsbyggðarþingmenn geta deilt aðstoðarmanni 15. febrúar 2008 16:08 MYND/GVA
Aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka verða í fullu starfi og hafa starfsaðstöðu á skrifstofum Alþingis en aðstoðarmenn alþingismanna verða í þriðjungsstarfi og hafa starfsaðstöðu í kjördæmunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tillögum sem forsætisnefnd Alþingis samþykkti á fundi sínum í dag og lúta að fyrirkomulagi aðstoðarmanna alþingismanna. Í tengslum við breytingar á þingsköpum á Alþingi fyrir áramót var samþykkt að koma á fót störfum aðstoðarmanna þingmanna. Annars vegar var gert ráð fyrir starfi aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokka og hins vegar starfi aðstoðarmanna þingmanna úr landsbyggðarkjördæmunum þremur, Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum. Samkvæmt tillögunum verður þingmönnunum heimilt að slá sér saman um ráðningu aðstoðarmanns og hækkar þá starfshlutfall hans í samræmi við það. Þrír þingmenn geta því deilt með sér einum aðstoðarmanni. Laun aðstoðarmanna verða hlutfall af þingfararkaupi. Fram kemur í tilkynningu frá Alþingi að aðstoðarmennirnir verði ráðnir eftir tillögu viðkomandi alþingismanna en skrifstofa Alþingis mun sjá um alla launaumsýslu og gerð ráðningarsamninga. Ráðningartímabil verður að hámarki til loka kjörtímabils hverju sinni. Aðstoðarmennirnir munu vinna eftir fyrirmælum alþingismannanna. Þeir fá jafnframt greiðslu fyrir útlögðum kostnaði eftir nánari reglum. Aðstoðarmennirnir verða ekki opinberir starfsmenn en áskilið er að farið verði eftir sömu almennu hæfisskilyrðum og gilda um opinbera starfsmenn. Enn fremur eru settar skorður við skyldmennaráðningum. Reglur um aðstoðarmenn alþingismanna munu öðlast gildi frá og með 1. mars 2008 og verða þá birtar á heimasíðu Alþingis.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira