Krefjast þess að ráðherrar standi við orð sín 15. febrúar 2008 10:17 Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra lét þau orð falla á þingi að ekki yrðu fleiri ný álver á suðvesturhluta landsins á næstu árum og misserum. MYND/GVA
Náttúruverndarsamtök Íslands fara fram á það að ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar og forsætisráðherra standi við orð sín í tengslum við byggingu álvera á suðvesturhorninu. Í tilkynningu sem kemur í kjölfar frétta af því að senn verði ráðist í byggingu álvers í Helguvík minna samtökin á fyrri orð ráðamanna í málinu.Bent er á að við umræður á Alþngi þann 12. nóvemberum þá ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar að ganga ekki til samningaviðræðna að sinni við fyrirtæki sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- og Vesturlandi hafi forsætisráðherra lýst því yfir að ... vissulega þýðir þetta að óbreyttu að ekki verður reist álver í Þorlákshöfn eða nýtt álver á Suðvesturlandi."Þá er bent á að Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra hafi sagt að „ekki verða teknar ákvarðanir um nýjar álverksmiðjur á suður- og suðvesturhluta landsins. ... Ekki verða fleiri ný álver á þessum hluta landsins á næstu árum og missirum, það liggur ljóst fyrir eftir þessa ákvörðun."Segja Náttúruverndarsamtök Íslands að ráðherrarnir hafi gleymt þessum yfirlýsingum sínum. Á hinn bóginn hafi talsmenn Samfylkingarinnar kosið að tjá sig ekki um fyrirhugað álver í Helguvík þrátt fyrir að ráðamenn fyrirtækisins hyggist hefja framkvæmdir án starfsleyfis, án tilskilinna leyfa til losunar gróðurhúsalofttegunda og án þess að úrskurður umhverfisráðherra um heildstættt mat virkjunar- orkuflutninga og álversframkvæmda liggi fyrir. Að sama skapi liggi enn ekki fyrir loftslagsstefna ríkisstjórnar Íslands.„Samfylkingin boðaði nýja umhverfisstefnu fyrir kosningar s.l. vor og kynnti áform um stóriðjustopp þar til fram hefði farið Rammaáætlun um náttúruvernd og sættir náðst um frekari virkjanauppbyggingu. Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, gengisfelldi þessa stefnu strax eftir kosningar með því að hafna því að afturkalla rannsóknarleyfi í Gjástykki sem forveri hans, Jón Sigurðsson, veitti einungis tveimur dögum fyrir kosningar án logboðinnar aðkomu umhverfisráðuneytisins. Vitaskuld þvert á kosningaloforð síns flokks. Þar með tók Össur ábyrgð á spillilngu Framsóknarflokksins" segja Náttúruverndarsamtökin.Þau krefjast þess að ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar standi við orð sín og veiti þjóðinni andrúm til að meta náttúruverndargildi þeirra svæða sem orkufyrirtækin sækist eftir að eyðileggja. Jafnframt beri forsætisráðherra skylda til að standa við þau orð sem hann flytji þingi og þjóð.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Sjá meira