Innlent

Búið að opna vegi eftir snjóflóð og grjóthrun

MYND/GVA

Snjóflóð féll á þjóðveginn á milli Súðavíkur og Ísafjarðar um klukkan hálfsex í morgun. Engin bíll varð fyrir flóðinu og ruddu vegagerðarmenn veginn snemma í morgun.

Þá var þjóðveginum um Þvottárskriður á Austfjörðum lokað í morgun vegna grjóthruns en vegagerðarmenn náðu að opna hann aftur á tíunda tímanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×