Vilhjálmur er að meta stöðu sína 10. febrúar 2008 09:51 Gísli Marteinn Baldursson segir að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði sjálfur að svara til um pólitíska framtíð sína.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, er að meta pólitíska stöðu sína, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Ekki þykir ólíklegt að hann stígi til hliðar og borgarstjórnarflokkurinn finni sér annað borgarstjóraefni. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi rætt við Vilhjálm og fleiri borgarfulltrúa eftir ummæli Vilhjálms í Kastljóssþætti á fimmtudaginn og atburðarásina þar á eftir. Blaðið hefur enn fremur heimildir fyrir því að Vilhjálmur hafi síðustu daga ráðfært sig við ýmsa framámenn í flokknum um stöðu sína. Gísli Marteinn Baldursson, formaður borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, segir góða einingu ríkja í flokknum. Spurður hvort Vilhjálmur muni víkja segir hann að miðað við núverandi stöðu sé ekki útlit fyrir neitt annað en að hann taki við en "Vilhjálmur verði að svara þessu sjálfur". Fréttablaðinu hefur ekki tekist að ná tali af Vilhjálmi síðan á fimmtudag. Gísli Marteinn segir borgarstjórnarflokkinn ekki hafa fundað formlega um ummæli Vilhjálms í Kastljóssþættinum og atburðarás síðustu daga. Fólk hafi hins vegar rætt saman í síma. "Við erum öll í góðu sambandi. Það er einhugur í hópnum. Vilhjálmur er okkar oddviti og engin umræða um annað innan okkar hóps. Við komum öll að lokavinnslu REI-skýrslunnar og vorum sammála um að hún renndi stoðum undir þá skoðun okkar allra að við þyrftum að vanda okkur þegar stórar og miklar ákvarðanir væru annars vegar og tryggja nauðsynlegt samráð og samvinnu sem skorti í REI-málinu í október," segir Gísli Marteinn. "Þetta ræddum við hreinskilnislega okkar á milli eftir að við misstum meirihlutann. Skýrslan tók undir þetta með okkur enda vorum við öll sjö sátt við niðurstöðu hennar." Gísli Marteinn segist telja að óánægjan sem risið hafi upp í samfélaginu síðustu daga tengist ekki efni skýrslunnar. "Þetta tengist frekar meirihlutaskiptunum fyrir tveimur vikum, sem margir voru óánægðir með og að einhverju leyti REI-málinu í október. Orð Vilhjálms í Kastljósinu um fyrrverandi eða núverandi borgarlögmann bætast svo þarna við. Varðandi það er auðvitað aðalatriðið að báðir þessir aðilar, núverandi og fyrrverandi borgarlögmaður, telja ótvírætt að Vilhjálmur hafi haft umboð." Gísli Marteinn segir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins skynja óróa í samfélaginu."Við viljum ekki loka augunum fyrir honum. Við finnum óánægju og auðvitað munum við setjast niður saman og vinna úr þessu. Verkefnið fram undan fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn er að endurheimta traust borgarbúa."
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira