REI stýrihópurinn ræddi aldrei við Björn Inga, Vilhjálm og Hauk Leósson 8. febrúar 2008 16:03 Björn Ingi Hrafnsson, Guðmundur Þóroddsson og Haukur Leósson.
REI stýrihópurinn ræddi aldrei við Björn Inga Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúa, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóra, og Hauk Leósson, fyrrverandi stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur þegar skýrsla um samruna REI og GGE var unnin. Þetta staðfestu þremenningarnir við Vísi í dag. Hins vegar var talað við Guðmund Þóroddsson, forstjóra REI, Bjarna Ármannsson, stjórnarformann REI og Hjörleif Kvaran, stjórnarformann Orkuveitunnar. Skýrsla stýrihópsins var kynnt á borgarráðsfundi í gær. Í bréfi Svandísar Svavarsdóttur formanns stýrihópsins til borgarinnar segir að hópnum hafi verið falið að gera ítarlega úttekt á aðdraganda og kynningu stjórnar- og eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur 3. október og þeim ákvörðunum sem þar voru teknar er varða sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy. Auk þess hafi stýrihópnum verið falið að koma með tillögur um framtíðarstefnumótun Orkuveitu Reykjavíkur. „Stýrihópurinn ræddi aldrei við mig. Þeir höfðu sjálfsagt ekki áhuga á að heyra mína hlið á málinu," sagði Haukur í samtali við Vísi. „Ég hefði alveg verið til í að hitta nefndina ef þess hefði verið óskað," sagði Björn Ingi. Að öðru leyti vildi Björn ekki tjá sig um málið. „Afstaða þeirra lá fyrir og þess vegna þótti ekki vera ástæða til þess að boða þá Vilhjálm og Björn Inga á fund okkar. Þeir höfðu talað skýrt um sína þætti málsins, bæði í fjölmiðlum og í borgarstjórn," sagði Svandís þegar Vísir spurði hana hvers vegna þremenningarnir hafi ekki verið kallaðir á fund nefndarinnar. Aðspurð um það hvers vegna ekki hafi verið talað við Hauk Leósson sagðist Svandís ekki vilja tjá sig.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira