Ríkislögreglustjóri fær gögn hjá skattrannsóknarstjóra 8. febrúar 2008 15:29 MYND/GVA
Hæstiréttur hefur fallist á kröfu efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra um heimild til húsleitar hjá skattrannsóknarstjóra í tengslum við rannsókn á málum Óskars Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns Baugs. Þar staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms frá því í janúar en Hæstiréttur klofnaði í málinu. Ríkislögreglustjóri hafði óskað eftir því að skattrannsóknarstjóri afhenti honum upplýsingar um skattamál sem tengjast Baugsmálinu. Þeirri ósk synjaði skattrannsóknarstjóri á þeim grundvelli að það væri skattrannsóknarstjóra að rannsaka meint brot á skattalögum og yfirskattanefndar að úrskurða um sektir nema þegar máli væri vísað til opinberrar rannsóknar hjá lögreglu. Hæstiréttur klofnaði Ríkislögreglustjóri fór með málið fyrir dóm sem komst að því að lögregla hefði heimild til að leita hjá skattrannsóknarstjóra. Að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra klofnaði Hæstiréttur í afstöðu sinni. Þrír dómarar töldu að það væri ekkert sem takmarkaði vald lögreglu til þess að fá gögn sem þessi en tveir dómarar töldu að skattrannsóknarstjóra bæri að meta hvort vísa bæri málum till lögreglu. Gæti þýtt stefnubreytingu og fleiri mál til lögreglu Aðspurð um þýðingu þessa dóms segir Bryndís að gögnin verði afhent. Hvað almenna þýðingu varði búist hún við að fleiri málum verði vísað til lögreglu en nú er gert og lögregla fái því fleiri mál á sína könnu. Við ákvörðun um hvort málum sé vísað til lögreglu hafi skattrannsóknayfirvöld horft til ýmissa mála. „Þessi dómur gæti þýtt að öllum málum sem varða 262. grein hegningarlaga (sem snýr að skattalagabrotum) verði vísað till lögreglu. Það úrræði að ljúka málum hjá skattrannsóknarstjóra eða yfirskattanefnd verði þá undantekning frekar en hitt," segir Bryndís og bendir á að þessu hafi hingað til verið öfugt farið. Þetta gæti því þýtt ákveðna stefnubreytingu. Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira