Segir REI málið hafa veikt stöðu sína 7. febrúar 2008 20:57
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri vissi ekki af beinni aðkomu FL-group við gerð þjónustusamnings milli Orkuveitunnar og REI. Hann segir REI málið hafa veikt stöðu sína í borgarstjórn en telur sér stætt á að halda áfram þar sem hann hafi ekki brotið af sér. Lokaskýrsla stýrihóps borgarráðs um málefni REI og Orkuveitu Reykjavíkur var tekin fyrir á fundi borgarráðs í dag. Tveir hæstaréttarlögmenn gáfu stýrihópnum lögfræðilegt álit, Andri Árnason og Lára V. Júlíusdóttir. Andri Árnason telur að eigendafundur Orkuveitu Reykjavíkur þar sem samruni REI og Geysis GReen Energy var ákveðinn 3. október síðastliðinn hafi verið lögmætur. En segir að almennar forsendur gildi um ákvarðanir sem teljist óvenjulegar og mikilsháttar falli utan við umboð borgarstjóra.Lára V. Júlíusdóttir telur hins vegar að eigendafundurinn hafi verið ólögmætur þar sem ekki hafi verið boðið til hans samkvæmt lögum. Þá telur hún að ekki sé hægt að ógilda þær ákvarðanir sem þáverandi borgarstjóri tók á umræddum fundi og hann hafi ekki farið út fyrir umboð sitt.Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri sagði eftir fund borgarráðs í dag að hann hefði hvorki brotið lög né farið út fyrir sitt umboð og sagði borgarlögmann kvitta upp á það. Þess má geta að Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður tók ekki afstöðu til þess hvort Vilhjálmur hefði farið út fyrir umboð sitt í svari sínu til umboðsmanns Alþingis.Þá var bein aðkoma FL -group að gerð þjónustusamnings við Orkuveituna harðlega gagnrýnd í skýrslunni. Menn hjá FL-group telja ekkert athugavert við sína aðkomu þar sem félagið væri stærsti hluthafinn í Geysi green.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira