Ekki menntamálaráðherra sem semur við kennara 7. febrúar 2008 11:27 MYND/GVA
Ekki er hægt að líta svo á að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafi talað fyrir sjónarmiðum ríkisstjórnarinnar þegar hún lýsti því yfir að hækka þyrfti verulega laun kennara á fundi á dögunum. Þetta sagði Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra á þingi í dag og vísaði til þess að fjármálaráðherra færi með samninga við opinbera starfsmenn. Með þessu var hann að svara óundirbúinni fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna. Hann vísaði til orða sem Þorgerður Katrín lét falla á fundi með sjálfstæðismönnum í Vahöll á dögunum. Þar sagði Þorgerður að kennarar hefðu dregist aftur úr í launum og ef menn vildu fá gott fólk í skólana þyrfti að hækka laun kennara og styrkja menntun þeirra. Spurði Steingrímur hvort ekki væri ljóst að þarna væri talað fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Sagðist hann fagna orðum menntamálaráðherra og kennarar þyrftu að fá myndarlegar launahækkanir. Árni M. Mathiesen sagði samninga ríkisins við starfsmenn sína vandmeðfarinn málaflokk. Það hefði verið stefna ríkisstjórnarinnar að láta almenna markaðinn vera leiðandi varðandi launaþróun. Það þýddi þó ekki að jafnt ætti yfir alla að ganga því stundum væri það svo að einn hópur þyrfti að fá launaleiðréttingu umfram annan. Vísaði hann til þess að á vegum ríkisstjórnarinnar væri nú unnið að því að hækka laun svokallaðra kvennastétta. Enn fremur sagði Árni að ekki væri hægt að líta svo á að sjónarmið menntamálaráðherra væri sjónarmið ríkisstjórnarinnar. Það væri hlutverk fjármálaráðherra að semja við opinbera starfsmenn og það yrði gert á næstu mánuðum. Sagði svar ráðherra loðið Steingrímur sagði svar ráðherra loðið að því undanskildu að fjármálaráðherra hefði svarið af sér menntamálaráðherra. Sagði hann enn fremur að ríkisstjórnin væri búin að hleypa málum í uppnám a almennum vinnumarkaði en gæti enn gert eitthvað í málum opinberra starfsmanna. Fjármálaráðherra sagði ekki skrýtið að svör hans væru loðin í ljósi þess að hann væri á leið í samningaviðræður. Það væri engin leið að segja úr ræðustóli Alþingis hvernig samningar ættu að vera. Benti hann aftur á að það væri ekki menntamálaráðherra sem færi með samninga við opinbera starfsmenn heldur fjármálaráðherra. Hvað sem liði góðum hug yrði að gæta að því hvernig staðið yrði að samningum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira