Ekki góður bragur á því að hafa reykherbergi á þingi 7. febrúar 2008 10:55
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sagði ekki góðan brag á því að heimila reykingar í herbergi í Alþingishúsinu í ljósi þess að þingið hefði samþykkt lög um að banna reykingar á opinberum stöðum. Lagði hann til að herberginu yrði lokað. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, vakti athygli á þeirri deilu sem uppi hefur verið um reykingar á veitingastöðum. Vísaði hann til þess að kráareigendur hefðu mótmælt því að mega ekki hafa reykherbergi með því að heimila reykingar á stöðum sínum á dögunum. Þetta mál vekti upp spurningar um reykingabann og baráttuna við reykingar í samfélaginu.Dregið hefði úr reykingum undanfarin ár eftir þrotlausa forvarnavinnu. Samfélagslegar afleiðingar reykinga væru alvarlegar og kostnaður þjóðarbúsins vegna þess árið 2003 hefði verið 20 milljarðar á verðlagi ársins 2000. Tóbaksvarnir væru stórt heilbrigðismál og lýðheilsumál og spurði hann ráðherra hvort hann hygðist standa vörð um tóbaksvarnarlögin. Guðlaugur Þór svaraði því til að hann hygðist gera það. Markmiðin væru skýr og Íslendingar hefðu náð árangri á þessum vettvangi, sérstaklega hjá þeim sem yngstir eru. Sagðist hann vilja nýta þær forvarnaraðferðir víðar. Heilbrigðisráðherra sagði að menn ættu þó að byrja að taka til heima hjá sér. Vísaði Guðlaugur til þess að reykherbergi væri fyrir starfsmenn Alþingis. Sagði hann ekki góðan brag á því að Alþingi, sem samþykkt hefði tóbaksvarnarlögin, byði upp á slíkt. Sagðist hann hafa fengið fjöldan allan af athugasemdum frá fólki vegna þessa. Lagði hann til að þingmenn gengju í það að losa sig við reykherbergi.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira