Starfsmönnum samgönguráðuneytis fjölgar um þriðjung 2. janúar 2008 12:23 Samgönguráðuneytið er til húsa í Hafnarhúsinu. MYND/Heiða
Starfsmönnum samgönguráðuneytisins fjölgar nú um áramótin um þriðjung þegar ýmis verkefni verða færð til ráðuneytisins. Meðal þeirra verkefna sem ráðuneytið tekur við er rekstur Keflavíkurflugvallar og málefni Flugmálastjórnar. Breytngarnar eru gerðar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og er markmið þeirra að laga stjórnsýsluna og verkefni ráðuneyta að þörfum nútímans að því er segir í athugasemdum með lagafrumvarpi um tilfærslu verkefna. Mestar verða breytingarnar innan samgönguráðuneytisins og mun starfsmönnum þess fjölga um þriðjung en hjá ráðuneytinu störfuðu áður 24 starfmenn en verða 32. Sveitarstjórnarmál og Jöfnunarsjóður sveitarfélaganna færast til ráðuneytisins frá félagsmálaráðuneytinu og með þeim verkefnum flytjast fimm starfsmenn til samgönguráðuneytisns. Þá er gert ráð fyrir að ráða tvo til viðbótar. Ábyrgð á málefnum Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar flyst einnig til samgönguráðuneytisins en þau mál hafa verið á forræði utanríkisráðuneytisins. Fyrirhuguð er lagabreyting í því skyni að sameina starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvarinnar í opinbert hlutafélag og mun samgönguráðherra fara með hlutabréf ríkisins í félaginu. Þriðja breytingin á ráðuneytinu er sú að ferðamál verða flutt til iðnaðarráðuneytisins. Þá er fyrirhugað að færa vatnamælingar frá Orkustofnun til Veðurstofu Íslands og verður stofnuð ný stofnun utan um starfsemina sem mun heyra undir umhverfisráðuneytið í stað iðnararáðuneytis. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins færist frá viðskiptaráðuneyti til iðnaðarráðuneytis og menntastofnanir landbúnaðarins færast úr landbúnaðarráðuneyti til ráðuneytis menntamála.
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sjá meira