Innlent

Framkvæmdastjóri Norvíkur tjáir sig ekki um einhliða lengingu greiðslufrests

Brynja Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Norvíkur, tjáir sig ekki um þá ákvörðun nokkurra dótturfyrirtækja samsteypunnar um að lengja greiðslufrest til birgja. Mikillar óánægju gætir hjá mörgum þeirra í kjölfar ákvörðunarinnar en í bréfi sem sent var birgjum er sagt að til að tryggja „skilvirkari greiðslur" hafi Byko, ELKO, Intersport og Húsgagnahöllin ákveðið að greiða reikninga til birgja 60 dögum eftir lok úttektarmánaðar. Þannig getur greiðslufrestur orðið allt að 90 dögum.

Undir bréfið rita Gísli Jón Magnússon og Brynja Halldórsdóttir, en hún er framkvæmdastjóri Norvíkur auk þess sem hún situr í framkvæmdastjórn Byko. Í samtali við Vísi sagðist Brynja ekkert hafa um málið að segja og sagði að Norvík myndi ekki tjá sig um málið í fjölmiðlum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×