Ráðherra ræddi um embætti vegamálastjóra við Vegagerðarfólk 9. apríl 2008 20:00 MYND/Vilhelm
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði þá spurningu óviðeigandi hvort hæfniskröfur í auglýsingu um embætti vegamálastjóra væru til að útiloka Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóra í stöðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá starfsmannafélagi miðstöðvar og Suðvestursvæðis hjá Vegagerðinni. Þar segir að ráðherra hafi fundað með starfsmönnum Vegagerðarinnar í gær vegna auglýsingarinnar. Starfsmannafélagið hafði ásamt BHM gagnrýnt ráðherra fyrir að þrengja hæfisskilyrði í auglýsingu um stöðu vegamálastjóra á þann hátt að krefjast verkfræðimenntunar eða sambærilegrar menntunar, en slíkt var ekki gert þegar embættið var auglýst síðast. Háskólamenntun sem getur verið á öðru sviði en verkfræði Í tilkynningu frá starfsmannafélaginu vegna fundarins í gær segir að það fagni og þakki samgönguráðherra fyrir skjót viðbrögð við bréfi sem stjórnin sendi honum í síðustu viku. „Í máli hans kom fram að ljúft væri að upplýsa að sambærilegri menntun við verkfræðimenntun væri átt við háskólamenntun sem getur verið á öðrum sviðum en verkfræði, þó þannig að umsækjandi hafi lokið meistaraprófi eða kandídatsprófi samkvæmt eldra skipulagi háskólanáms. Jafnframt tilkynnti ráðherra hverjir hefðu sótt um stöðuna. Aðspurður hafnaði ráðherra eindregið þeirri spurningu hvort hæfniskröfur í auglýsingunni væru til að útiloka Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóra í stöðu vegamálastjóra og taldi spurninguna óviðeigandi," segir í tilkynningunni.Þess má geta að BHM hefur ekki sætt sig við skýringar ráðherra og hefur ítrekað kröfu sína um að hann dragi auglýsinguna til baka og auglýsi embættið á ný.Beðið eftir úttekt RíkisendurskoðunarÁ fundinum með Vegagerðarfólki svaraði ráðherra einnig spurningum sem hafa vaknað vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga en greint var frá þeim í auglýsingu á embætti vegamálastjóra. „Í svörum ráðherra kom fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar um skipulagsbreytingar. Það er beðið eftir skýrslu ríkisendurskoðanda en hann vinnur nú að stjórnsýsluúttekt á Vegagerðinni og Siglingastofnun," segir í tilkynningunni. Samkvæmt upplýsingum Vísis fundaði ráðherra með starfsmönnum Siglingastofnunar vegna sama máls í morgun.„Tillögur um skipulagsbreytingar sem hann mun hugsanlega leggja fram verða þá teknar til athugunar. Ráðherra sagði þó að ekki stæðu fyrir dyrum meiriháttar breytingar á Vegagerðinni né stæði til að flytja starfsemi hér í Reykjavík út á land enda væri starfsemi Vegagerðarinnar dreifð um allt land og mættu aðrar stofnanir taka hana sér til fyrirmyndar hvað það varðar.Á fundinum kom fram að allar skipulagsbreytingar sem yrðu hugsanlega gerðar yrðu unnar í samvinnu við starfsmenn Vegagerðarinnar. Stjórnin fagnar boðuðu samstarfi og er tilbúin til að taka þátt í því með ráðuneytinu," segir að lokum í tilkynningu frá starfsmannafélagi Vegagerðarinnar.
Tengdar fréttir BHM ítrekar kröfu um að ráðherra dragi auglýsingu til baka Bandalag háskólamanna sættir sig ekki við svör Kristjáns L. Möller samgönguráðherra vegna auglýsingar á embætti vegamálastjóra og ítrekar kröfu sína um að ráðherra dragi auglýsinguna til baka. Þá vill bandalagið staðan verði augýst að nýju þannig að gegnsæi sé tryggt og ráðuneytið verði ekki af hæfum umsækjendum. 9. apríl 2008 16:25 Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Innlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Þungfært víða um land Veður Fleiri fréttir „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra Sjá meira
BHM ítrekar kröfu um að ráðherra dragi auglýsingu til baka Bandalag háskólamanna sættir sig ekki við svör Kristjáns L. Möller samgönguráðherra vegna auglýsingar á embætti vegamálastjóra og ítrekar kröfu sína um að ráðherra dragi auglýsinguna til baka. Þá vill bandalagið staðan verði augýst að nýju þannig að gegnsæi sé tryggt og ráðuneytið verði ekki af hæfum umsækjendum. 9. apríl 2008 16:25
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent