Segir gatnamót Fellsmúla og Háaleitisbrautar slysagildru 9. apríl 2008 19:30
Foreldrara í Fellsmúla í Reykjavík vilja frekar keyra börnin sín nokkur hundruð metra í Álftamýraskóla en láta þau ganga yfir gatnamót Fellsmúla og Háleitisbrautar. Móðir segir gatnamótin vera slysagildru en keyrt var á son hennar þar fyrir nokkrum vikum. Börn sem búsett eru í Fellsmúla og sækja Álftamýraskóla þurfa að fara yfir gatnamót Háleitisbrautar og Fellsmúla til að komast leiðar sinnar. Vandamálið er að á sama tíma og bílar sem eru að koma frá Fellsmúla fá grænt til að keyra yfir gatnamótin kviknar líka á grænu ljósi fyrir gangandi vegfarendur hér fyrir aftan mig. Ökumenn sem taka vinstri beygju inn á Háaleitisbraut átta sig ekki alltaf á þessu. Heiða Björk Sævarsdóttir á þrjá syni í Álftamýraskóla. Hún segir að margir foreldrar kjósi frekar að keyra börnin sín í skólann sem er aðeins í nokkur hundruð metra í burtu frekar en leyfa þeim að ganga. „Það er svona einn og hálfur mánuður síðan þá var keyrt á minn fjórtán ára á þessari gangbraut. Hann slapp vel og slasaðist ekki neitt en aftur fyrir jól þá var hún Elma Lísa sem tvíhandleggsbrotnaði á þessum sömu gatnamótum. Það hefur verið keyrt á mig hérna, verið keyrt á kerru sem ég var að keyra yfir gatnamótin. Það er það sem við vitum en hvað hefur verið keyrt á mörg börn sem við vitum ekki," segir hún. Um 200 foreldrar í Fellsmúlanum skrifuðu undir áskorun til borgarstjóra á síðasta ári þar sem hvatt var til þess að gatnamótunum yrði breytt. Heiða segir að eftir að nýr meirihluti tók við hafi málið hins vegar týnst í kerfinu. „Það er setið á þessum peningum. Hann Dagur lét eyrnamerkja okkur peninga í þetta verkefni en svo þegar tóku nýir við þá er ekkert að gerast," segir Heiða og spyr: „Ætlum við að byrgja brunninn þegar einhver er dáinn á þessum gatnamótum eða viljum við gera eitthvað áður en það gerist."
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira