Ekki sama umhverfisverndarsinnar og vörubílstjórar 9. apríl 2008 18:49
Enginn vörubílstjóri hefur verið sektaður, handtekinn eða kærður vegna mótmælanna undanfarna tólf daga. Mál þeirra eru í rannsókn. Lögreglan var öllu skjótari til þegar umhverfisverndarsinnar óku einum bíl og gengu eftir Snorrabraut síðastliðið sumar. Þá voru fimm handteknir. Tólf dagar eru síðan vörubílstjórar hófu mótmæli sín og hafa síðan ítrekað valdið miklum umferðartöfum á helstu stofnæðum borgarinnar. Framan af fór að mestu vel á með lögreglu og mótmælendum. Enginn hefur verið sektaður, handtekinn eða kærður vegna mótmælanna en lögreglan hefur safnað upplýsingum um þá sem hafa gerst brotlegir og er að rannsaka málin. Hópur skrautklæddra einstaklinga í Saving Iceland fór í mótmælagöngu frá Perlunni síðastliðið sumar og fékk þá heldur óblíðari móttökur. Lögreglan skarst í leikinn á Snorrabraut. Hún reyndi að stöðva eina bílinn í göngunni og braut rúðu í bílnum því ökumaðurinn neitaði að ræða við lögreglu. Síðan voru fimm handteknir og kærðir. Ekki dugði minna en sex lögreglumenn til að handtaka einn þeirra með nokkrum fyrirgangi. Skýringar á viðbrögðum lögreglu þá voru að Snorrabrautin væri ein af stofnæðum borgarinnar sem þyrfti að halda opinni til að tryggja öryggi almennings.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira