Ráðherra gæti jafnræðis við úthlutun ríkisstyrkja til flugfélaga 9. apríl 2008 16:41 Mynd/Vísir
Samkeppniseftirlitið hefur beint þeim tilmælum til samgönguráðherra að beita sér fyrir því að gæta jafnræðis milli flugfélaga við veitingu ríkisstyrkja til flugsamgangna. Með því megi greiða fyrir mögulegri samkeppni á viðkomandi mörkuðum. Er því beint til samgönguráðherra að hann stuðli að því að framvegis fari fram útboð um ríkisstyrki til flugfélaga á milli áfangastaða innanlands í samræmi við reglur þar um og almenna góða samkeppnishætti. Fram kemur í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins að eftir að Landsflug hætti áætlunarflugi milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur í september 2006 hafi samgönguráðherra falið Vegagerðinni að semja við Flugfélag Íslands um að halda úti tímabundnu áætlunarflugi á flugleiðinni. Gengið var frá samningnum þann 11. október 2006 og hófst flug samkvæmt honum þann 15. október 2006. Um var að ræða samning sem gilda átti í a.m.k. 10 mánuði en á þeim tíma var gert ráð fyrir að unnið yrði að formlegu útboði á flugleiðinni. Ákvörðun um veitingu styrksins fór þannig fram að rætt var við valda aðila en þeir voru Flugfélag Íslands, Landsflug og Flugfélagið Ernir ehf. Ekkert samband var haft við Flugfélag Vestmannaeyja í tengslum við þessar aðgerðir hins opinbera, þrátt fyrir að félagið hafi á þessum tíma verið sá aðili sem flutti flesta farþega í flugi til Vestmannaeyja en félagið hefur annast áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Bakkaflugvallar auk leiguflugs milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Jafnframt er upplýst að Flugfélag Vestmannaeyja hafi á þessum tíma haft til skoðunar að hefja áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Taldi ráðuneytið að félagið gæti ekki uppfyllt skilyrði Vegagerðarinnar um flugvélakost. Að mati Flugfélags Vestmannaeyja hefur ríkisstyrkur til Flugfélags Íslands valdið Flugfélagi Vestmannaeyja tjóni. „Í áliti Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Flugfélag Vestmannaeyja hafi hagsmuni af því hvernig flugi á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur sé háttað. Samkeppniseftirlitið telur það ekki málefnalegt eða í samræmi við góða samkeppnishætti að leita ekki til Flugfélags Vestmannaeyja þegar Vegagerðin ákvað að gera samning til skamms tíma um ríkisstyrkt flug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur haustið 2006. Unnt var að halda til haga kröfum sem Vegagerðin gerði til umrædds flugs, s.s. varðandi stærð og fleira sem lýtur að flugvélakosti og þjónustu, án þess að útiloka keppinaut á flugmarkaðnum fyrirfram frá ferlinu. Er það mat Samkeppniseftirlitsins að Vegagerðinni í umboði samgönguráðuneytisins hafi borið að gefa Flugfélagi Vestmannaeyja tækifæri til að gera tilboð í hið ríkisstyrkta flug ásamt þeim sem til var leitað eða að öðrum kosti að bjóða það út í samræmi við reglur. Með vinnubrögðum ráðuneytisins í þessu máli var unnið gegn mögulegri innkomu nýs aðila í flugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja," segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira