Framhaldssamkeppni um hönnun óperuhúss 9. apríl 2008 15:32 Gunnar Birgisson, bæjarstjóri og óperuunnandi. MYND/Hrönn
Engin þeirra tillagna sem bárust í samkeppni um hönnun óperuhúss í Kópavogi þótti nógu góð til þess að hún yrði valin ein og sér og því verður efnt til framhaldssamkeppni með þátttöku tveggja aðila sem bestar tillögur lögðu fram. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Salnum í Kópavogi í dag þar sem undirbúningsnefnd að byggingu óperuhússins kynnti niðurstöður dómnefndar í samkeppni um hönnun hússins. Fram kemur í tilkynningu frá Kópavogsbæ að þremur íslenskum ariktektastofum hafi verið boðið að taka þátt í keppninni og áttu þær að fá til liðs við sig erlenda samstarfsaðila sem hefðu reynslu af hönnun óperuhúsa eða sambærilegra mannvirkja. Gert var ráð fyrir að framkvæmdakostnaður við húsið næmi 2,5 milljónum og að það yrði risið árið 2010. Þátt tóku arkitektastofurnar ASK Arkitektar ehf. ásamt Lund & Valentin Arkitekter, ALARK arkitektar ásamt David Crossfield Associates og Arkþing ehf. ásamt Arkitema K/S. „Dómnefndin taldi enga tillögu uppfylla markmið samkeppninnar nægjanlega vel til að unnt yrði á þessu stigi að velja eina þeirra til útfærslu. Tillögurnar hefðu þó verið metnaðarfullar, ólíkar og fjölbreyttar og borið með sér að í þær hefði verið lögð töluverð vinna og metnaður," segir í tilkynningunni. Hins vegar þóttu tillögur ALARK og Arkþings það áhugaverðar að hægt væri að vinna með þær áfram og mælti dómnefndin með því við undirbúningsnefndina að leitað yrði samstarfs við höfundana um þátttöku í framhaldskeppni. Undirbúningsnefndin samþykkti þá tillögu dómnefndar og höfundar tillagnanna hafa fallist á að taka þátt í slíkri keppni. Henni á að ljúka á hér um bil tveimur mánuðum. Í dómnefnd sitja Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri, formaður, Stefán Baldursson óperustjóri og arkitektarnir Ásdís Ingþórsdóttir, Ólafur Axelsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson. Undirbúningsnefnd skipa Gunnar I. Birgisson, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúi, Stefán Baldursson óperustjóri og Jón Helgi Guðmundsson forstjóri.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira