Segir óvissu um framtíð embættis hafa truflandi áhrif 9. apríl 2008 12:27
Lögreglustjóri Suðurnesja segir óvissuna um framtíð embættisins hafa truflandi áhrif á starfsemina. Hann kallar eftir niðurstöðu í málinu sem allra fyrst. Samkvæmt tillögum sem nú liggja fyrir frá dómsmálaráðuneytinu verður embætti lögreglunnar og tollgæslunnar á Suðurnesjum skipt upp en embættin voru sameinuðu á síðasta ári. Er þetta gert til að bregðast við yfirvofandi fjárskorti en 200 milljónir króna vantar til hægt sé að tryggja óbreyttan rekstur embættisins. Starfsmenn embættisins hafa mótmælt breytingunum sem þeir telja að muni skaða starfssemina. Í Fréttablaðinu í morgun var fullyrt að þingflokkur Samfylkingarinnar leggist gegn hugmyndum ráðuneytisins og telji að breytingarnar séu óskynsamlegar.Jóhann R. Benendiktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir óvissuna um framtíð embættisins hafa truflandi áhrif. „Það segir sig sjálft að það ástand sem er núna er mjög vont. Þetta hefur truflandi áhrif á alla starfsemina þegar óvissa er. Ég er fyrst og fremst þakklátur starfsfólki mínu að halda einbeitingu við þessar erfiðu aðstæður," segir Jóhann.Jóhann segir núverandi skipulag vera gott. „Því nánari sem samvinnan er og stjórnun einfaldari og samþættuð hlýtur að skila okkur meiri árangri en aðskilin stjórnun. Ég held að allir hljóti að fallast á slíka niðurstöðu og ég held að slík stjórnunarfræði hljóti að skila meiri árangri frekar en hitt," segir Jóhann.Jóhann kallar eftir niðurstöðu í málinu sem allra fyrst. „Ég hef alla vega sagt það mjög skýrt að ég vilji sjá samræmda stjórnun lögreglu og tollgæslu," segir Jóhann.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Sjá meira