Innlent

Kannabisskógar í Kópavogi og Breiðholti

Lögregla uppgötvaði þennan kannabisskóg í miðborginni á mánudag.
Lögregla uppgötvaði þennan kannabisskóg í miðborginni á mánudag.

Lögregla lagði hald á sextíu kannabisplöntur á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Fjörutíu þeirra fundust við húsleit í Kópavogi en hinar tuttugu í íbúð í Breiðholti. Að sögn lögreglu var karlmaður um fertugt handtekinn í tengslum við síðarnefnda málið.

„Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en við þær naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu liðsinnis lögreglumanna frá Norðurlandi," segir í tilkynningu frá lögreglu.

Á mánudaginn var lagði lögregla einnig hald á 54 kannabisplöntur sem voru á lokastigi ræktunar í íbúð í miðborginni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×