Sammála menntamálaráðherra um laun kennara 12. febrúar 2008 14:16 MYND/Heiða
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segist fullkomlega sammála Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, um að hækka þurfi laun kennara. Þetta kom fram í umræðum um störf þingsins í dag. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, vísaði til þess að um þarsíðustu helgi hefði Þorgerður Katrín menntamálaráðherra lýst því yfir að hækka þyrfti laun kennara. Í kjölfarið hefði fjármálaráðherra lýst því yfir að málið væri á sínu borði og því að mati Valgerðar snuprað menntamálaráðherra. Innti Valgerður Samfylkinguna um stefnuna í þessu máli. Vísaði hún til þess að Samfylkingin hefði sagt fyrir síðustu kosningar að bæta ætti launakjör hefðbundinna kvennastétta. Nú væri flokkurinn kominn í ríkisstjórn og því væri fróðlegt að heyra hvað flokkurinn hygðist gera í málinu. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, vísaði til stjórnarsáttmála þar sem fram kæmi að endurmeta ætti laun hefðbundinna kvennastétta og það ætti meðal annars við um kennara. Pólitískur vilji væri til að taka á málinu. Benti hann á að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður flokksins, hefði í borgarstjóratíð sinni komið myndarlega til móts við ummönnunarhópa og sýnt þar pólitískst þor. Hann hefði sjálfur lengi kallað eftir meiri peningum í menntakerfið og því væri hann fullkomlega sammála varaformanni Sjálfstæðisflokksins um að hækka þyrfti laun kennara. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á að kjarasamningar væru ekki í höndum Alþingis eða menntamálaráðherra en gera þyrfti betur við kennara. Gjörbylta þyrfti þeim samningum sem gerðir væru við kennara og hætta að meta sérþekkingu þeirra í mínútum og sekúndum. Þeir sem færu með umboð til kjarasamninga ættu að skoða sjálfstæði skólanna til að fara með sín mál. Þá benti Ragnheiður á að fyrir Alþingi lægi frumvarp um aukna menntun kennara. Það kallaði á launahækkun hjá kennurum. Menntun þjóðarinnar skipti máli og þessi stétt ætti að vera vel launuð. Valgerður lýsti ánægju með svör Samfylkingarinnar en sagði að það versta væri ekki væri hægt að líta svo á að þau hefðu gildi miðað við orð fjármálaráðherra á þingi í síðustu viku. Þar hefði hann sagt að ekki væri hægt að líta svo á að sjónarmið menntamálaráðherra væru sjónarmið ríkisstjórnarinnar. Sagði Valgerður því ekki nóg að láta orðin falla í þingsal heldur þyrfti að vinna að málinu þar sem ákvarðanir um þau yrðu teknar.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Safna fyrir Steinunni sem lést við barnsburð á Landspítalanum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Sjá meira