Unglingagengi stal og skemmdi fyrir rúmar fjórar milljónir 12. febrúar 2008 15:01 Einn af bílunum sem drengirnir skemmdu í Hafnarfirði.
Fjórir piltar á aldrinum 16-19 ára hafa verið ákærðir fyrir að hafa á löngu tímabili meðal annars eyðilagt fjórtán bíla og brotist þrisvar inn í sömu sjoppuna. Drengirnir hafa skilið eftir sig skilaboð á sumum bílanna þar sem þeir hafa krotað orðin "D-Dog" og "Fuck Five". Í ákæru sem þingfest var í héraðsdómi Reykjaness í morgun kemur fram að drengirnir hafa ítrekað gerst sekir um lögbrot. Meðal annars brutust þeir með nokkurra daga tímabili þrisvar sinnum inn í Bryndísarsjoppu í Hafnarfirði og stálu þar sígarettum, símkortum og sælgæti. Einnig var rúða brotin í Flensborgarskólanum með felgulykli. Piltarnir stálu einnig bíl fyrir utan Sambíóin við Álfabakka en bifreiðin fannst daginn eftir bensínlaus til móts við Arnarnes. Einhverjir piltanna voru teknir í Smáralind þar sem þeir báru hnúajárn og voru með hníf. Einnig brutust þeir inn í Björnsbakarí og stálu sígarettum í verslun 10-11. Piltarnir virðast hafa stundað það að skemma bifreiðar. Brutu þeir rúður með hafnarboltakylfum og steinum en í eitt skiptið var þríhjól látið flakka inn um framrúðu bifreiðar. Í einhver skipti höfðu þeir krotað orðin "D-Dog" og "Fuck Five" á skemmda bílana. Alls skemmdu piltarnir fjórtán bifreiðar á skömmu tímabili. Í ákærunni kemur fram að piltarnir hafa ýmsit skemmt eða stolið fyrir 4,298,861 krónur.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira