Ástþór Magnússon boðar framboð til næstu þingkosninga 24. nóvember 2008 10:05 Ástþór Magnússon og Natalía Wium eiginkona hans. MYND/VILHELM
Lýðræðishreyfingin sem stofnuð var af Ástþóri Magnússyni og fleirum árið 1998 mun styðja 126 einstaklinga til framboðs við næstu alþingiskosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lýðræðishreyfingunni. Þar kemur einnig fram að hreyfingin verði frjáls og óháður vettvangur frambjóðenda sem kynna kjósendum málefni sín á eigin forsendum og án flokkafjötra. Óbundnir fyrirfram ákveðinni flokkslínu. „Með því að samnýta gat í kosningalögum og nýja hugmyndafræði Lýðræðishreyfingarinnar verður bylting í Íslenskum stjórnmálum við næstu kosningar," segir í tilkynningunni. Í samtali við Vísi segir Ástþór að umrætt gat í kosningalögum snúi að því að nú sé hægt að merkja við ákveðna frambjóðendur á kjörseðlinum. „Þú getur þá merkt við ákveðna einstaklinga í fyrsta sæti og sá sem fengi flest atkvæði yrði númer eitt og færi inn á þing ef hreyfningin næði inn manni," segir Ástþór og bætir við að lykilatriðið sé að hreyfingin sé þverpólitísk. „Hreyfingin hefur ekki skoðun á því hvort við eigum að ganga inn í esb, taka upp evru eða hvað það er sem fólkið er að tala um. Hreyfingin er einungis vagninn undir framboðið og kemur meira að þessu með fjárhagslegum hætti." Í tilkynningunni segir ennfremur að opnaður hafi verið vefur þar sem landsmenn geta skráð óskir sínar um framboð. Endanlegt val frambjóðenda verður síðan samkvæmt prófkjöri með nýstárlegum hætti og tækni sem þróuð hefur verið fyrir beint og milliliðalaust lýðræði. „Í ljósi vaxandi mótmæla og nýrrar skoðanakönnunar er ljóst að ríkisstjórnin hefur misst traust þjóðarinnar með afgerandi hætti. Þetta þarf ekki að koma á óvart enda les þjóðin nú um glæpsamleg athæfi innan banka og stórfyrirtækja í dagblöðum. Óhætt er að fullyrða að í flestum lýðræðisríkjum væru stjórnendur þessara stofnana í gæsluvarðhaldi í stað þess að ganga frjálsir að eyða gögnum og jafnvel hefja spillingarleikinn að nýju. Þótt Íslensk löggjöf geri ekki ráð fyrir að almenningur geti beitt áskorunum eða öðrum viðlíka tækjum innan ramma laganna til að fá burt ríkisstjórn sem misst hefur traust þeirra, þá stöðva einstakir valdhafar sem sitja í trássi við vilja þjóðarinnar ekki framgang lýðræðisins. Forsætisráðherra ber tafarlaust að biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti og leita til forseta Íslands um myndun utanþingsstjórnar skipaða sérfræðingum sem tæki að sér björgunarstarfið fram að kosningum. Lýðræðishreyfingin varar stjórnvöld við því að ganga svo fram af þjóðinni að fólkið þyrpist hundruðum eða þúsundum saman til að bera stóla þeirra úr Alþingishúsinu. Stjórnmálamönnum ber að endurmeta stöðu sína í takt við vilja almennings. Geri þeir það ekki á lögregla að stíga til hliðar og gefa lýðnum kost á að bera út ráðherrastólana með friðsömum hætti."
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira