Spá allt að 30 prósenta lækkun á húsnæðisverði fram til loka árs 2010 10. apríl 2008 15:15
Seðlabankinn spáir því að húsnæðisverð lækki um allt 30 prósent að raunvirði til loka ársins 2010 vegna lægri ráðstöfunartekna, þrenginga á lánamörkuðum og aukins framboðs á íbúðarhúsnæði. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Peningamála sem bankinn birti í dag. Þar segir enn fremur að miklar breytingar hafi orðið á horfum í íslenskum efnahagsmálum frá því að bankinn kynnti síðast spá í nóvember í fyrra. Áhrif lánsfjárkreppu á alþjóðamörkuðum hafa vaxið, meðal annars með verulegri gengislækkun krónunnar. „Aðlögun efnahagslífsins að jafnvægi verður ekki lengur umflúin og nokkuð snarpur samdráttur virðist framundan," segir í Peningamálum. Gert er ráð fyrir að verðbólgan fari hæst í um ellefu prósent á árinu og að bankinn þurfi enn að hækka stýrivexti. Veður skipast skjótt í lofti Þá segir Seðlabankinn að vöxtur einkaneyslu hafi verið mikill. Heimilin hafi tekið lán í erlendum gjaldmiðlum í auknum mæli. Veður hafi hins vegar skipast skjótt í lofti. Ráðstöfunartekjur heimilanna muni minnka þrátt fyrir launahækkanir vegna kjarasamninga. Þá hafi mikil verðbólga og gengislækkun krónunnar þegar þyngt greiðslubyrði heimilanna vegna verð- og gengistryggðra skulda. Þyngri greiðslubyrði leiði til þess að einkaneysla dregst ört saman og samdráttur einkaneyslu verður meiri og langvinnari en Seðlabankinn hafi áður gert ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að einkaneyslan árið 2010 verði svipuð og meðaltal áranna 2004 og 2005. Þá gerir spá Seðlabankans ráð fyrir að ráðstöfunartekjur dragist saman um tæplega 2½ prósent þrátt fyrir að skattabreytingar vegi á móti. Hækkun íbúðaverðs umfram verðlag gengur til baka Bent er á að kólnun á húsnæðismarkaði hafi þegar komið fram í því að verðhækkun íbúðarhúsnæðis hafi u.þ.b. stöðvast þrátt fyrir umtalsverða hækkun byggingarkostnaðar og velta hafi minnkað hratt. Spáð er minni vexti íbúðafjárfestingar í ár og verulegum samdrætti á árunum 2009 og 2010. Alls dregst fjárfesting í íbúðarhúsnæði saman um tæplega 14 prósent á spátímabilinu samkvæmt Seðlabankanum. Horfur séu á að lækkun ráðstöfunartekna, þrengingar á lánamörkuðum og aukið framboð íbúðarhúsnæðis leiði til umtalsverðar verðlækkunará húsnæði. Gert sé ráð fyrir að húsnæðisverð lækki um 30 prósent að raunvirði á spátímabilinu sem nær til loka ársins 2010. „Gangi það eftir mun hækkun íbúðaverðs umfram almennt verðlag undanfarin fimm ár ganga að mestu leyti til baka. Verðið yrði eftir sem áður ekki lágt í sögulegu samhengi. Gríðarleg óvissa er um þessa þróun, m.a. vegna þess að hún kann að hafa umtalsverð áhrif á útlánagetu fjármálakerfisins. Ekki er því hægt að útiloka enn meiri samdrátt á fasteignamarkaði," segir Seðlabankinn.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira