Innlent

Segir Seðlabankann taka fulldjúpt í árinni

Seðlabankinn.
Seðlabankinn.

„Mér finnst þetta fulldjúpt tekið í árinni," segir Reynir Björnsson, löggiltur fasteignasali á fasteignasölunni Húsavík.

„Við eigum auðvitað von á samdrætti í ár og fram á næsta ár en við eigum líka von á að því að um leið og bankarnir komast í betra umhverfi geti þeir farið að bjóða betri vexti sem skilar sér svo inn á fasteignamarkaðinn. Það er ekkert launungarmál að það er mjög lítið að gera á markaðnum og minna að gera en við áttum von á en ég undrast hversu langt menn ganga í þessari spá," sagði Reynir og bætti því við að hann byggist við lækkun fasteignaverðs út þetta ár en svo vænti hann þess að markaðurinn næði stöðugleika á ný. „Ég á alls ekki von á svona stórum tölum eins og Seðlabankinn er að spá sagði Reynir að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×