Knattspyrnuheimurinn er rotinn 20. júlí 2008 16:32 Simon Jordan sparar ekki stóru orðin NordcPhotos/GettyImages
Simon Jordan, stjórnarformaður Crystal Palace, dregur upp ófagra mynd af knattspyrnuheiminum í samtali við News of the World í dag. Hann segir knattspyrnuna vera að rotna í spillingu og sýndarmennsku. Jordan varð á sínum tíma yngsti stjórnarformaðurinn í ensku knattspyrnunni þegar hann keypti Crystal Palace fyrir átta árum og hann hefur aldrei verið þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum. Hér fyrir neðan má sjá ágrip af því sem Jordan hafði að segja um nokkra áberandi einstaklinga í kring um knattspyrnuna. Cristiano Ronaldo, Man Utd: "Ronaldo er bara kjánalegur strákpjakkur sem ætti að virða samning sinn, halda sér saman og spila. Fyrirgefðu snáði, en þú skrifaðir undir fimm ára samning - gerðu það sem þér er sagt! Menn ofmetnast á því að heyra 60,000 manns kalla nafn þeirra í hverri viku. Ronaldo yrði fljótur að fá leið á því að sitja á bekknum hjá United. Hann áttar sig ef hann verður settur út í kuldann í smá stund." Frank Lampard, Chelsea (sem er tregur til að framlengja samning sinn við félagið): "Við lesum um það í blöðunum í hverri viku að fólk geti ekki selt heimili sín og sé komið á hreppinn, en á baksíðunum lesum við um knattspyrnumenn sem hafna samningum sem færa þeim 20 milljónir í vikulaun. Enginn knattspyrnumaður á skilið að fá 20 milljónir á viku - kannski einhverjir skurðlæknar - en ekki knattspyrnumenn." Sepp Blatter, forseti FIFA (sem líkti knattspyrnumönnum við þræla): "Það er kominn tími til að breyta viðhorfum forráðamanna í knattspyrnuheiminum til leikmanna. Ef þetta var haft rétt eftir Blatter, er hann bölvað fífl." Coleen McLoughlin, eiginkona Wayne Rooney: "Því meira sem ég sé af fréttum af fólki eins og Coleen McLoughlin, sem er bara lítil stelpa frá Liverpool sem fólk heldur að við eigum að sjá sem fyrirmynd - hugsa ég með mér: Hvað í andskotanum er í gangi?" Umboðsmenn knattspyrnumanna: "Umboðsmenn eru úrhrök með illt innræti og þeir þrífast bara af því knattspyrnuheimurinn er svo spilltur."
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira