Fordómar gagnvart grænmetisfæði að minnka 31. júlí 2008 12:19 Sólveig Eiríksdóttir betur þekkt sem Solla í Grænum Kosti.
Sólveig Eiríksdóttir, betur þekkt sem Solla í Grænum Kosti, telur fordóma gagnvart ýmiss konar grænmetisfæði vera að minnka hér á landi en nú eru 100 ár síðan Alþjóðasamtök grænmetisætna (International Vegetarian Union) var stofnað. Hún segist ekki þekki þau samtök neitt sérstaklega en nefndi að um aldamótin 1900 hafi verið mikil vakning varðandi mataræði. „Það voru ýmsir listamenn og rithöfundar sem urðu grænmetisætur um þarsíðustu aldarmót. þá var mjög mikil vakning með mataræði eins og er núna. Amma mín fór til dæmis árið 1915 að læra hjúkrun í Kaupmannahöfn og fór á hráfæðimataræði en þá hún bjó hjá fólki sem aðhyllist slíkt mataræði," segir Sólveig. Að sögn Sólveigar hefur verið reynt að stofna samtök grænmetisætna á Íslandi en það gengið brösótt. „Það getur verið svo erfitt að setjá fólk á einhvern bás eins og þess konar samtök væru. Oft þegar fólk hugsar um grænmetisætur sér það fyrir sér einhverja hippa í kínaskóm." Sólveigu finnst þetta hins vegar vera að breytast og nú vera meiri viðurkenning á að vera á grænmetisfæði. Hún telur einnig að fólk sé kannski minna að skilgreina eins mikið hvort það sé grænmetisæta eða ekki. Sjálf varð Sólveig grænmetisæta fyrir 30 árum þar sem hún hefur ofnæmi fyrir dýraafurðum. Hún segir að ástandið þá hafi oft verið skelfilegt á þeim tíma þannig að hún hafi þurft að læra að bjarga sér sjálf. Þessa dagana er Sólveig að skrifa uppskriftir í Vikuna og að undirbúa sig fyrir námskeiðahald vetursins. Hún verður með hráfæðinámskeið 7. ágúst næstkomandi á Kaffi Hljómalind með erlendum hjónum sem eru sérfræðingar á því sviði.
Mest lesið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Tónlist Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Fleiri fréttir „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Sjá meira