Verð hér 64 prósentum hærra en að meðaltali innan ESB 20. maí 2008 15:01
Verð á matvöru hér á landi er 64 prósentum hærra en að meðaltali í ESB-ríkjunum og allmargir samningar birgja og matvöruverslana fela í sér ákvæði sem kunna að raska samkeppni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins um viðskiptasamninga birgja og matvöruverslana og annað samstarf fyrirtækja á matvöru markaði. Eftir því sem segir í tilkynningu stofnunarinnar ber birgjum og matvöruverslunum að ganga úr skugga um að samningar þeirra feli ekki í sér samkeppnishindranir. Þá bendir könnun Samkeppniseftirlitsins til þess að forverðmerkingar birgja á matvörum takmarki verðsamkeppni milli matvöruverslana. Verðmunur á þessum vörum milli verslana sé margfalt minni en eðlislíkra vara sem ekki eru forverðmerktar. Bendir eftirlitið aðilum á þessum markaði á nokkur atriði í samningum sem geti fali í sér samkeppnishindranir og segist munu fylgja því eftir að samningar feli ekki í sér brot á samkeppnislögum. „Fyrirtæki sem verða uppvís að samkeppnislagabrotum mega vænta þess að þurfa að sæta viðurlögum," segir í tilkynningunni. Telur Samkeppniseftirlitið að með umræddum aðgerðum sé hægt að efla samkeppni og lækka verð til íslenskra neytenda. Samkeppniseftirlitið réðst í gerð skýrslunnar eftir að hafa aflað og farið yfir fjölda viðskiptasamninga birgja og matvöruverslana og annarra endursöluaðila í því skyni að meta áhrif þeirra á samkeppni á matvörumarkaði. Beindist gagnaöflunin að um 70 birgjum. Skýrsluna í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira