Sérsveitarmaður sendir þingmönnum bréf 20. maí 2008 16:17 Sérsveitarmenn að störfum.
Runólfur Þórhallsson, lögregluvarðstjóri í sérsveit Ríkislögreglustjóra, hefur sent öllum þingmönnum opið bréf þar sem hann talar fyrir hönd hins almenna lögreglumanns í sérsveitinni. Bréfið skrifar hann í tilefni af orðum Lúðvíks Bergvinssonar, alþingismanns, sem sagði á dögunum tímabært að leggja embætti Ríkislögreglustjóra niður í núverandi mynd. Þá segir hann tilefni bréfsins einnig vera hugmyndir Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra um að færa sérsveitina undir hans stjórn í Reykjavík. „Ég starfa í sérsveit ríkislögreglustjórans sem lögregluvarðstjóri. Við sérsveitarmenn erum ákaflega metnaðarfullir og viljum sinna okkar störfum af mikilli skyldurækni og alúð," segir Þórhallur meðal annars í bréfinu. Hann segir að fáir geri sér grein fyrir því að sérsveitarmenn sinni fyrst og fremst löggæslu en ekki sérverkefnum. „Sérsveitin gerir út merktar lögreglubifreiðar allan sólarhringinn, allt árið um kring sem sinnir löggæslu. Almennri-, grenndar-, nær-löggæslu allt eftir því hvaða tískuyrði menn vilja leggja sér til munns. Sérsveitin heldur mjög nákvæma dagbók í gagnagrunni um störf sín og þegar verkefnin þar eru skoðuð undanfarin misseri má sjá að verkefni sem tengjast almennri löggæslu eru mörg þúsund talsins. Þetta spannar alla flóruna, umferðalagabrot, veggjakrot, brot á lögreglusamþykkt (miðbæjarpissumálin) heimilisófriður, líkamsárásir, fíkniefnamál o.fl." Hann segir að stærsti hluti hinna daglegu verkefna fari fram á höfuðborgarsvæðinu. „Að auki sinnum við aðstoðarbeiðnum frá embættum víðsvegar um landið og höfum sinnt almennri löggæslu á hestamannamótum, sjómannadögum á Patreksfirði og Ólafsvík og aðstoðað vegna mótmæla víðsvegar um landið. Þetta hefur verið auðsótt mál fyrir embættin út á landi fyrst og fremst vegna þess að hlutverk Ríkislögreglustjóraembættisins er skv. lögreglulögum að veita lögreglustjórum aðstoð og stuðning." „Það var einmitt Stefán Eiríksson lögreglustjóri LRH sem vann ötullega að því, ásamt mörgum núverandi yfirmönnum í lögreglunni, fyrir nokkrum árum síðan að færa sérsveitina til Ríkislögreglustjórans," segir Runólfur. „Stefán var þá skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytisins. Að þessari vinnu komu m.a. yfirmenn hjá Lögreglunni í Reykjavík og á Suðurnesjum. Ekkert hefur breyst sem kallar á að þessi ráðahagur verði endurskoðaður, heldur þvert á móti hefur þetta fyrirkomulag reynst afar vel," segir Runólfur. „Þetta sýnir svart á hvítu að sérsveitin sinnir almennri löggæslu alla daga, allan ársins hring um allt land," segir hann ennfremur. „Þetta eru einfaldlega staðreyndir sem mætti hafa í huga þegar formaður þingflokks sem er í ríkisstjórn, stígur í pontu hins háa Alþingis og leggur til að ríkislögreglustjóraembættið verði lagt niður. Viðhlæjendur hans mættu einnig taka þetta til athugunar. Hjá ríkislögreglustjóra vinnur fólk. Gott fólk, góðir lögreglumenn sem sinna löggæslu. Þetta góða fólk á fjölskyldur og vini. Því bregður þegar að háttsettir þingmenn tala um vinnustaðinn þeirra á þennan hátt."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira