Dagur fer á flokksþing Demókrata 25. ágúst 2008 11:18 Dagur B. Eggertsson. MYND/valgarður
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, er á leið til Denver í Colorado þar sem hann mun verða viðstaddur flokksþing Demókrataflokksins. „Þetta er mjög spennandi en þetta er auðvitað gríðarlega stór viðburður á alla kanta," segir Dagur. „Það er spurning hvort séu að verða vatnaskil í því hvernig stjórnmálin í Bandaríkjunum eru byggð upp og virka," segir Dagur. „Þetta hefur gengið mikið út á peninga og fjölmiðlaumfjöllun hingað til og gerir reyndir ennþá, en Obama hefur einnig tekist að virkja grasrótina og unga fólkið í miklu meira mæli en nokkur annar hefur gert," segir Dagur. Aðspurður hvorn frambjóðandann hann hafi stutt í kosningabaráttunni Obama eða Hillary Clinton segir Dagur: „Ég hef raunar dáðst að Hillary í gegnum árin. Bróðir minn býr hins vegar í Bandaríkjunum og hann og hans kona voru eldheitir stuðningsmenn Obama þannig að það var beinlínis ekki vinsælt að viðra aðrar skoðanir inna fjölskyldunnar á meðan á baráttunni stóð því hún var geysilega hörð á köflum!," segir Dagur og bætir því við að nú verði áhugavert að sjá hvernig flokknum tekst að „brúa bilið á milli þessara tveggja fylkinga og ná einum sameinuðum flokki út úr þessum landsfundi. Það er algjört lykilatriði ef á að vinna þennan harða slag sem er framundan." Dagur segist gera sér litlar vonir um að hitta Barack Obama á fundinum. „Ég geri mér engar vonir um það og ætla bara að stilla slíkum væntingum í hóf. Ég ætla bara að sjá og hlusta og læra, því það er auðvitað mjög mikið af áhugaverðu fólki á þessari samkomu," segir Dagur en bætir því við að hann hafi reyndar hitt varaforsetaefnið Joe Biden árið 2003.
Mest lesið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Lífið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Felix kveður Eurovision Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Voru í sjötta sæti í undankeppninni Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Lífið Fleiri fréttir Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Sjá meira