Innlent

10 þúsund steratöflur haldlagðar

Ýmsar leiðir eru reyndar til þess að smygla sterunum hingað til lands.
Ýmsar leiðir eru reyndar til þess að smygla sterunum hingað til lands.

Fyrstu tíu mánuði ársins komu sautján svokölluð steramál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar af tólf síðla sumars og í haust.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að samtals hafi verið lagt hald á um 10 þúsund steratöflur og liðlega 1.200 millilítra af sterum í vökvaformi.

„Um er að ræða stera sem tollyfirvöld fundu í bréfum eða pökkum en þeir sem stóðu að þessum sendingum lögðu talsvert á sig við að leyna innihaldinu, m.a. með því að koma sterunum í umbúðir af ólíklegasta tagi. Innflutningur stera er óheimill og varðar við brot á lyfjalögum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×