Slökkviliðsmaður á mótorfáki Breki Logason skrifar 3. júlí 2008 10:00 Oddur Eiríksson á mótorhjólinu. „
Það má segja að hugmyndin hafi komið fyrst frá mér," segir Oddur Eiríksson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður um kaup Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á tveimur vel búnum vélhjólum. Hjólin eru hugsuð til þess að tryggja enn skjótari viðbrögð þegar umferð er mikil og mikið af fólki í bænum. Oddur sem hefur starfað sem slökkviliðsmaður í þrjátíu ár er mikill vélhjólamaður og átti eitt sllíkt þegar hann var ungur. „Ég fékk mér síðan annað fyrir nokkrum árum." Oddur hefur notað hjólið sitt nokkuð í starfi síðustu tvö árin og stakk síðan upp á því að keypt yrðu tvö hjól. „Ég sendi mínum yfirmönnum póst og þeir tóku bara mjög vel í þetta," segir Oddur en vélhjól voru fyrst prófuð hjá slökkviliðinu hér á landi í tengslum við Þjóðvegahátíðina miklu í „den" eins og Oddur orðar það. „Í öllum helstu höfuðborgum í kringum okkur eru menn með svona farartæki. Hugsunin er sú að þegar bærinn er fullur af fólki þá komast slökkviliðs- og sjúkrabílar ekki yfir umferðina. Þegar það er mikil umferð út úr bænum setjum við mann á hjólið milli fjögur og átta," segir Oddur en nokkur kraftur er í hjólunum sem eru 650cc og voru flutt inn af versluninni Nítró. Á hjólunum er einnig búnaður til forgangsaksturs og búnaður til endurlífgunar, svo sem súrefni, hjartastuðtæki, sáraumbúnaður, búnaður til að setja upp vökva og fleira. Einnig er á þeim slökkvitæki með sex kílóum af léttvatni.
Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Sjá meira