Vantar styrki fyrir tónleikunum í Höllinni 13. nóvember 2008 11:23
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að styrkja ekki fyrirhugaða tónleika í Laugardalshöll á Laugardaginn kemur. Lára Ómarsdóttir, einn af aðstandendum tónleikanna, sem eru undir yfirskriftinni „áfram með lífið" og er ætlað að þjappa þjóðinni saman á erfiðum tímum, segist vonsvikin með ákvörðun borgarinnar. Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs, bendir á að leiga vegna hallarinnar hafi verið felld niður og að tónleikahaldarar hljóti að geta leitað á önnur mið með frekari styrki. „Við fórum fram á það við borgina að hún myndi standa straum af kostnaði vegna gæslu, þrifa og slökkviliðs," segir Lára en sá kostnaður er talinn verða um 1,7 milljónir króna. „Borgarráð ákvað hins vegar að taka ekki þátt í þessu." Rétt er að benda á að Reykjavíkurborg hefur þegar ákveðið að krefjast ekki greiðslu fyrir afnot af Laugardalshöllinni. „Stjórn Laugardalshallarinnar tók málið fyrir og veitir þessum tónleikahöldunum einhverja fyrirgreiðslu," segir Óskar og vísar til leigunnar. „Hins vegar eru þessir tónleikar að einhverju leyti útgáfutónleikar þeirra aðila sem þarna koma fram og ef Reykjavíkurborg ætlar að fara að taka upp á því að styrkja alla þá sem sýna frumkvæði í því að koma saman í tilefni þess að þeir eru að gefa út plötu held ég að við séum komin út í umhverfi sem við ráðum tæplega við." Óskar segir að Reykjavíkurborg fagni þó framtakinu. „En mér finnst þá eðlilegt að menn sæki styrki víðar en á einn stað. Ég held að við séum, miðað við stöðuna í efnahagslífinu, að taka þeirra erindi vel og tónleikahaldarar hljóta að leita styrkja víðar en til okkar." „Nú er staðan þannig að tónleikarnir eru í mínus sem þessu nemur," segir Lára en allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína. Tónleikarnir verða á Laugardaginn og hefjast þeir klukkan átta. Frítt er á tónleikana á meðan húsrúm leyfir en hægt er að nálgast miða frá klukkan 12:00 samdægurs í Laugardalshöll. Fjöldi listamanna kemur fram á tónleikunum en þar á meðal eru Baggalútur, HAM, Lay Low, Ný Dönsk, Sálin hans Jóns míns og Bubbi Morthens.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Sjá meira