Lífið

Sigurgeir Sigurjónsson hlýtur Myndstefsverðlaunin í ár

Sigurgeir Sigurjónsson.
Sigurgeir Sigurjónsson. Fréttablaðið/Stefán

Sigurgeir Sigurjónsson hlaut Myndstefsverðlaunin 2008 sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í dag. Viðurkenninguna hlýtur Sigurgeir fyrir ljósmyndir sínar af mönnum, dýrum og landi sem draga upp sterka drætti úr íslenskum veruleik sem sjá má í fjölmörgum og margvíslegum ljósmyndabókum hans, eins og segir í tilkynningu.

Í umsögn dómnefndar kemur fram að myndir Sigurgeirs beri með sér einlæga virðingu fyrir því sem fyrir augu ber, og einkennist af mikilli rósemi og yfirvegun.

Framan af vann Sigurgeir einkum við auglýsingar og iðnaðarljósmyndir ásamt portrettmyndum en síðan hefur hann sótt megin viðfangsefni sín utan þéttbýlis í náttúru og mannlíf Íslands.

Sigurgeir hefur verið mjög afkastamikill í útgáfu bóka sem eru með vinsælustu ljósmyndabókum um Ísland. Þá vakti hann mikla athygli fyrir bók sína Íslendingar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.