Ákvörðunin um þjóðnýtingu Glitnis var óheppileg 6. desember 2008 11:38
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir það blasa við að ákveðin togstreita hafi verið á milli sín og Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra varðandi evrópumálin og upptöku evru. Hann segir seðlabankastjóra vera einbeittan andstæðing evrópusambandsins. Björgvin var gestur Björns Inga Hrafnssonar í Markaðnum á Stöð 2 fyrir stundu. „Þá má vera að sú pólitíska spenna sem verið hefur á milli okkar út af gjaldmiðlinum hafi gert það að verkum að samskipti okkar voru minni en þau hefðu átt að vera. Hann kaus að gera mér enga sérstaka grein fyrir stöðu mála en ég las stöðugleikaskýrslu Seðlabankans síðan í maí þar sem kom fram að staða bankanna væri viðunandi. Síðan kemur hann með eftiráskýringar og vitnar í samtöl við einstaka ráðherra, ég get ekki dæmt um það," sagði Björgvin í viðtalinu. Hann sagði verkefnið nú vera fyrst og fremst það að koma verði á krónuna og það hafi gengið prýðilega. Hann sagði hinsvegar óheppilegt að seðlabankastjóri skuli þramma aftur inn á hið pólitískasvið með þeim ummælum sem hann lét falla í vikunni. Hann sagði sjálfstæðismenn þurfa að túlka hvort í orðum Davíðs fælist hótun. Björgvin sagði að ef forsætisráðherra hefði talið að viðvaranir seðlabankastjóra hefðu verið þess eðlis að hann hefði þurft að láta sig vita hefði hann örugglega gert það. Björgvin sagði að nú væri undirbúningsvinna í gangi um hvort sameina ætti Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið en sú ákvörðun þyrfit að vera byggð á málefnanlegum forsendum og ekki til þess að losna við ákveðna menn. „Ef menn ætla sér að losna við einhverja menn þá gera þeir það bara hreint og beint. Það hefur hinsvegar lengi verið stefna Samfylkingarinnar að seðlabankastjóri skuli vera einn frekar en þrír." Aðspurður um traust Samfylkingarinnar í garð seðlabankastjóra ítrekaði Björgvin þá skoðun sína að óheppilegt væri að seðlabankastjóri væri að blanda saman pólitík og peningamálastjórnun, þar sem hún ætti að vera hafin yfir allan vafa og ætti ekkert skylt með pólitík. „En meðan hann situr þá nýtur hann traust Ríkisstjórnarinnar." Ákvörðunin um þjóðnýtingu Glitnis á sínum tíma hefur verið umdeild og var tekin í óþökk eigenda bankans. Viðskiptaráðherra var ekki hafður með í ráðum þar en Björgvin segir erfitt að meta hvort sú ákvörðun hafi hrint öllu af stað, þó það sé einföld skýring eftir á. „Það var mjög óheppilegt hvernig þetta bar að og lítur út fyrir almenningi. Þetta verður einn stærsti þátturinn í rannsókninni á bankahruninu en ég sem viðskiptaráðherra get ekki fellt dóm í þessu fyrirfram, það væri ekki sanngjarnt," sagði Björgvin. Hann sagði það þó blasa við að málið hefði verið unnið öðruvísi ef stjórnvöld hefðu verið kölluð fyrr til. Björgvin segist hafa frétt af þessari ákvörðun síðdegis á sunnudeginum þegar annar ráðherra og aðstoðarmaður sinn voru kallaðir á fund upp í Seðlabanka. „Okkar aðkoma var lítil sem engin og það er líka óeðlilegt að Seðlabankinn skuli ekki hafa kallað þá ráðherra sem að þessu komu fyrr til fundar en ekki þegar nánast var gengið að þessu sem gjörðum hlut."
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira